Fræðsluviðburðir
hagnýt fræðsla fyrir fólk á vinnumarkaði

Leigumarkaðurinn á Íslandi
Á námskeiðinu er fjallað um íslenskan leigumarkað, stöðu leigjenda og hvaða leiðir eru færar til að bæta stöðu þeirra.
Formaður Samtaka leigjenda á Íslandi kynnir stöðuna á íslenskum leigumarkaði og ber hana saman við nágrannalöndin. Farið verður yfir helstu áskoranir leigjenda, baráttumál Samtaka leigjenda og þær kröfur sem samtökin leggja áherslu á.
Einnig verður starfsemi og þjónusta Leigjendaaðstoðar Neytendasamtakanna kynnt. Farið verður yfir algeng mál sem berast Leigjendaaðstoðinni, úrræði sem standa leigjendum til boða, skyldur leigjenda og leigusala og ákvæði húsaleigulaga sem heimilt er að víkja frá í leigusamningi.
Námskeiðið er opið öllum félagsmönnum Eflingar og er þeim að kostnaðarlausu. Skráning fer fram í námskeiðastikunni hér fyrir neðan þegar næsta námskeið hefur verið auglýst.
Lífeyrisréttindi
Á námskeiðinu er farið yfir helstu atriði sem varða lífeyrisréttindi á Íslandi.
Fulltrúi Landssambands lífeyrissjóða svarar meðal annars spurningum um:
- Hvernig virkar lífeyrissjóðakerfið á Íslandi?
- Hvernig tengjast almennir lífeyrissjóðir og Tryggingastofnun?
- Hvar er hægt að nálgast upplýsingar um eigin lífeyrisréttindi?
- Hvernig er hægt að undirbúa starfslok?
Boðið er upp á námskeiðið á íslensku, ensku og pólsku.
Námskeiðið fer fram í húsnæði Eflingar, Guðrúnartúni 1, 4. hæð og er félagsmönnum að kostnaðarlausu.
Fyrir félagsmenn sem eru farin að huga að starfslokum er einnig mælt með námskeiðinu Á tímamótum, starfslokanámskeið. Það er ítarlegra námskeið þar sem farið er yfir undirbúning starfsloka frá ólíkum hliðum.
Skráning fer fram í námskeiðastikunni hér fyrir neðan þegar næsta námskeið hefur verið auglýst.
Skattkerfið á Íslandi
Á námskeiðinu er farið yfir helstu lög og reglur um skattkerfið á Íslandi. Fjallað verður um skyldur skattgreiðenda, muninn á launagreiðslum og verktakagreiðslum, gerð skattframtals og hvaða kostnað er hægt að nýta til frádráttar á skatti.
Boðið er upp á námskeiðið á ensku og pólsku.
Námskeiðið fer fram í húsnæði Eflingar, Guðrúnartúni 1, 4. hæð og er félagsmönnum að kostnaðarlausu.
Skráning fer fram í námskeiðastikunni hér fyrir neðan þegar næsta námskeið hefur verið auglýst.
Réttindi og skyldur á vinnumarkaði
Efling býður félagsfólki upp á námskeið um réttindi og skyldur á vinnumarkaði.
Á námskeiðinu fá félagsmenn upplýsingar um helstu réttindi sín samkvæmt kjarasamningum og hjá stéttarfélaginu. Sérfræðingar Eflingar í kjaramálum fara meðal annars yfir veikindarétt, uppsagnarfrest, laun, orlof og önnur mikilvæg atriði sem tengjast réttindum og skyldum á vinnumarkaði. Einnig verða réttindi félagsmanna í sjóðum Eflingar kynnt.
Boðið er upp á námskeiðið á íslensku, ensku og pólsku.
Námskeiðið er félagsmönnum að kostnaðarlausu. Skráning fer fram í námskeiðastikunni hér fyrir neðan þegar næsta námskeið hefur verið auglýst.
Á tímamótum – starfslokanámskeið
Ertu farin/n að huga að starfslokum?
Efling býður félagsmönnum upp á námskeið þar sem farið er yfir hagnýtar upplýsingar fyrir fólk sem er að undirbúa starfslok. Starfslok eru stór tímamót og geta haft mikil áhrif á daglegt líf, fjárhag, félagsleg tengsl og heilsu. Góður undirbúningur getur hjálpað fólki að takast betur á við breytinguna og móta næsta kafla á jákvæðan hátt.
Á námskeiðinu fjalla sérfræðingar meðal annars um lífeyrisréttindi, sjúkratryggingar, heilsu, réttindi hjá stéttarfélaginu og þjónustu sem stendur fólki til boða eftir starfslok. Einnig verður farið yfir félagsstarf, fræðslu og önnur úrræði fyrir fólk sem er komið á aldur.
Námskeiðið er haldið í samstarfi við Mími og er kennt á íslensku, ensku og pólsku, fer fram í húsnæði Eflingar, Guðrúnartúni 1, 4. hæð og er félagsmönnum að kostnaðarlausu.
Skráning fer fram í námskeiðastikunni hér fyrir neðan þegar næsta námskeið hefur verið auglýst.
Viðburðir
Sæki viðburði
Engir viðburðir á næstunni

