Náms- og starfsráðgjöf

Fáðu aðstoð við að ákveða næsta skref

Það er ekki alltaf auðvelt að vita hvaða möguleikar eru í boði eða hvað hentar best. Í náms- og starfsráðgjöf færðu samtal við ráðgjafa sem hjálpar þér að skoða stöðu þína, reynslu og möguleg næstu skref.

Ráðgjöfin getur nýst Eflingarfélögum sem vilja styrkja stöðu sína í núverandi starfi, skoða nám, fá reynslu metna eða hugsa um breytingu

veist ekki hvaða námskeið eða nám hentar þér 

vilt skoða hvort reynsla þín geti verið metin 

hefur ekki verið í námi lengi og ert óviss um hvar þú átt að byrja 

ert að hugsa um breytingu á starfi eða starfsþróun 

vilt styrkja stöðu þína í núverandi starfi 

vilt skoða styrkleika þína, áhuga og færni 

vilt aðstoð við ferilskrá eða kynningarbréf 

þarft að ræða hindranir eins og tíma, tungumál, kostnað eða fyrri reynslu af námi

Á ég erindi í ráðgjöf?

Ráðgjöf getur hentað ef þú...

Hvað getur ráðgjafi hjálpað með?

að fara yfir reynslu þína og verkefni í starfi

að skoða áhuga, styrkleika og færni

að finna námskeið eða námsleiðir sem gætu hentað

að fá upplýsingar um raunfærnimat

að vinna ferilskrá og kynningarbréf

að skoða hvort fyrra nám eða starfsreynsla geti nýst áfram 

Hvernig fer viðtalið fram? 

Þú bókar tíma hjá náms- og starfsráðgjafa. 

Í viðtalinu ræðið þið stöðu þína, reynslu, áhuga og það sem þú vilt skoða betur. 

Þú þarft ekki að koma með tilbúna áætlun. Það er nóg að koma með spurningu eða hugmynd. 

Ef þú átt ferilskrá, námskeiðsskírteini eða gögn um fyrra nám getur verið gott að hafa þau við höndina.

Er ráðgjöfin ókeypis?

Náms- og starfsráðgjöf er almennt gjaldfrjáls fyrir fólk með stutta formlega skólagöngu.

Ráðgjöfin getur verið góður staður til að byrja ef þú ert ekki viss hvaða nám, námskeið, raunfærnimat eða starfsþróun hentar þér.

Efling getur vísað félagsfólki áfram á rétta aðila.

Hvert á ég að leita?

Bóka ráðgjöf hjá Mími

Mímir er fyrsti viðkomustaður fyrir marga Eflingarfélaga sem vilja bóka náms- og starfsráðgjöf. Þar getur þú fengið aðstoð við að skoða stöðu þína, markmið, styrkleika og mögulegar leiðir áfram.

Iðn- og starfsnám

Ef spurningin þín tengist iðn- eða starfsnámi getur IÐAN verið rétti aðilinn. Náms- og starfsráðgjafar IÐUNNAR sérhæfa sig í ráðgjöf um iðn- og starfsnám, námsframboð, starfsþróun og raunfærnimat.

Ekki viss hvert þú átt að leita?

Hafðu samband við okkur og við hjálpum þér að finna réttan stað.