Raunfærnimat

fáðu reynslu þína metna og viðurkennda

Ert þú með langa starfsreynslu en hefur ekki lokið formlegu námi? Raunfærnimat er leið til að fá reynslu þína metna og viðurkennda.


Í raunfærnimati er það sem þú kannt úr starfi metið og borið saman við námskrá eða kröfur starfsins. Þannig getur þú fengið formlega staðfestingu á því sem þú kannt nú þegar.

Raunfærnimat getur:

  • Stytt nám
  • Auðveldað þér að hefja nám
  • Styrkt stöðu þína í starfi
  • Leitt til fagbréfs

 

Fyrir hverja er raunfærnimat?

Til að fara í raunfærnimat þarft þú að:

  • vera 23 ára eða eldri
  • hafa að minnsta kosti þriggja ára starfsreynslu í starfinu sem meta á
  • hafa stutta formlega menntun

Raunfærnimat er ókeypis fyrir þá sem ekki hafa lokið námi á framhaldsskólastigi eða fengið menntun sína metna á Íslandi. Aðrir greiða fyrir matið en geta sótt um niðurgreiðslu úr starfsmenntasjóði.

 

Hvernig fer þetta fram?

Ferlið hefst á viðtali við náms- og starfsráðgjafa og í framhaldinu er reynsla þín og færni metin. Eftir raunfærnimatið færðu niðurstöðu um hvað er þegar metið og upplýsingar um möguleg næstu skref.

 

Hver sér um raunfærnimat?

Raunfærnimat er framkvæmt af viðurkenndum fræðsluaðilum, til dæmis:

  • Mímir, fyrir leikskólaliða, félagsliða og stuðningsfulltrúa
  • Iðan , fyrir flest iðnnám
  • Framvegis, fyrir sjúkraliðabraut, tanntæknabraut og tölvubraut

 

Efling framkvæmir ekki raunfærnimatið sjálft en veitir upplýsingar og leiðir félagsmenn áfram á réttan stað.


Viltu kanna hvort að raunfærnimat henti þér? Hafðu samband við okkur eða bókaðu viðtal hjá fræðsluaðila.