Styrkir

Upplýsingar um styrki sem eru aðgengilegir félagsfólki Eflingar

Heilsuefling

Fræðslustyrkir

Sálfræði

Gleraugnastyrkur

Sjúkraþjálfun

Forvarnarstyrkir

Dánarbætur

Glasafrjóvgun

Laseraðgerðir

Heyrnatæki

Heilsustofnun

Ættleiðing erlendis frá

Sjúkradagpeningar

STYRKIR Í BOÐI

Hér finnur þú upplýsingar um styrki sem standa félagsfólki Eflingar til boða. Umsóknir fara allar fram á  mínum síðum Eflingar.

Til að eiga rétt á styrkjum þarftu að uppfylla eftirfarandi:


  • Það þarf að hafa verið greitt félagsgjald í Eflingu fyrir þína hönd samfellt í að minnsta kosti 6 mánuði.
  • Ef þú sækir um fræðslustyrki er nóg að hafa greitt í 6 mánuði af síðustu 24.


  • Við útreikning á fjárhæðum styrkja eru greiðslur til Eflingar skoðaðar síðustu 12 mánuði.
  • Hlutfallslegur réttur er reiknaður út frá fjárhæð þeirra greiðslna.

  • Þú þarft að vera í eða hafa verið í starfi og að greitt hafi verið iðgjald til Eflingar þegar sótt er um styrk.
  • Hægt er að sækja um styrki í allt að 3 mánuði eftir starfslok, eða eftir að þú hættir að greiða til Eflingar, ef þú framvísar kvittun sem nær yfir tímabil þar sem greitt var til Eflingar fyrr þína hönd.

  • Ef þú hefur verið félagi í Eflingu samfellt í 5 ár eða lengur og hættir vegna aldurs eða örorku heldur þú réttindum í allt að 24 mánuði.

  • Kvittanir sem þú framvísar þegar þú sækir um styrk mega ekki vera eldri en 12 mánaða.

  • Það gæti verið að þú eigir rétt hjá okkur hafir þú greitt í annað stéttarfélag áður en þú greiddir til Eflingar, hafðu samband við okkur og við skoðum málið með þér.
  • Nánar má lesa um réttindaflutning milli starfsmenntasjóða hér.

Heilsuefling - líkamsræktarstyrkur


Þú getur nýtt heilsueflingarstyrk fyrir þína eigin líkamsrækt, íþróttir, sund, dans og fleira.

Þú getur líka nýtt styrkinn til að kaupa reiðhjól.

Líkamsræktarstöðin, íþróttafélagið eða skólinn sem þú notar þarf að vera með kennitölu, fasta aðstöðu og viðurkennda kennara eða leiðbeinendur.

Greiddar eru að hámarki 23.000 krónur á hverjum 12 mánuðum allt að 100% kostnaðar.


Með umsókn skal fylgja greiðslukvittun með kennitölu félagsmanns, fyrir hvað er verið að greiða ásamt staðfestingu á greiðslu. Ef ekki kemur fram staðfesting á greiðslu á reikningi þarf að skila viðbótar staðfestingu á greiðslu, t.d. úr heimabanka eða greiðslukvittun frá útgefanda reiknings.


Fræðslustyrkir


Styrkir til einstaklinga

Þú getur sótt um fræðslustyrk hjá Eflingu, til að borga fyrir hluta af kostnaði við nám, námskeið, tómstundir eða ferðir sem tengjast slíkri fræðslu. Fræðslustyrkir eru greiddir í gegnum tvo sjóði og það fer eftir því hvar þú starfar, í hvorn sjóðinn þú sækir um.

  • Starfsafl: ef þú vinnur hjá einkafyrirtæki
  • Fræðslusjóður Eflingar og opinberra launagreiðanda: ef þú vinnur hjá ríki, sveitarfélagi eða á hjúkrunarheimili


Veldu þann sjóð sem á við þig til að sjá hvaða styrkir eru í boði.

  • Undanþága frá almennum reglum:
    Félagsmenn sem ekki hafa íslensku sem móðurmál geta sótt um endurgreiðslu vegna íslenskukennslu eftir að hafa greitt til félagsins í 1 mánuð. Hámarksgreiðsla er 90% hjá þeim sem starfa hjá einkafyrirtækjum en 100% hjá þeim sem starfa hjá hinu opinbera.

Styrkir til fyrirtækja og stofnana

Fyrirtæki og stofnanir geta sótt um fræðslustyrki vegna námskeiða eða annarar fræðslu.

Veldu viðeigandi sjóð til að fá frekari upplýsingar um styrki. 

Sálfræði eða félagsleg viðtalsmeðferð


Þú getur sótt um styrk vegna meðferða hjá:


  • Sálfræðingi.


  • Geðhjúkrunarfræðingi.


  • Félags- eða fjölskylduráðgjafa.


  • Fíkniráðgjafa.


  • Markþjálfa.


  • MFM matarfíkniráðgjöf.


  • Listmeðferð eða ADHD greiningu/meðferð fullorðinna.


  • Ráðgjöf hjá Lausninni.


Greiddar eru allt að 10.000 krónur fyrir hvert skipti, í allt að 15 skipti á hverjum 12 mánuðum að hámarki 75% af kostnaði. 


Styrkurinn er veittur vegna viðtalsmeðferðar hjá aðila sem ekki fellur undir afsláttarkort Sjúkratrygginga Íslands og því ekki greitt fyrir viðtal hjá geðlækni. 


Með umsókn skal fylgja greiðslukvittun. Ef ekki kemur fram staðfesting á greiðslu á reikningi þarf að skila viðbótar staðfestingu á greiðslu, t.d. úr heimabanka eða greiðslukvittun frá útgefanda reiknings.

Gleraugna- og linsustyrkuR


Þú getur sótt um styrk vegna kaupa á gleraugum og/eða linsum.


Greiddar eru allt að 35.000 krónur á hverjum 24 mánuðum að hámarki 50% af kostnaði.


Með umsókn skal fylgja greiðslukvittun. Ef ekki kemur fram staðfesting á greiðslu á reikningi þarf að skila viðbótar staðfestingu á greiðslu, t.d. úr heimabanka eða greiðslukvittun frá útgefanda reiknings.

Sjúkraþjálfun og endurhæfing


Þú getur sótt styrk vegna endurhæfingar og meðferðar hjá:


  • Löggiltum sjúkraþjálfara.


  • Löggiltum sjúkranuddara.


  • Heilsunuddara (með menntun frá Fjölbraut í Ármúla).


  • Iðjuþjálfa.


  • Talmeinafræðingi.


  • Næringarráðgjafa.


  • Osteópata.


  • Kírópraktor.


  • Ráðgjöf hjá Hjartaþeli


Greiddar eru allt að 2.500 krónur fyrir hvert skipti í allt að 15 skipti á hverjum 12 mánuðum að hámarki 75% af kostnaði. 


Með umsókn skal fylgja greiðslukvittun. Ef ekki kemur fram staðfesting á greiðslu á reikningi þarf að skila viðbótar staðfestingu á greiðslu, t.d. úr heimabanka eða greiðslukvittun frá útgefanda reiknings.

Forvarnarstyrkur


Þú getur sótt um forvarnarstyrki og undir þá geta fallið: 


  • Krabbameinsskoðanir vegna legháls og brjósta. Bæði grunn- og framhaldsskoðanir.


  • Blöðruhálsskoðanir.


  • Ristilskimanir.


  • Áhættumat hjá Hjartavernd eða annað heilsufarslegt áhættumat sem fellur ekki undir greiðsluþátttökukerfi SÍ.


  • CPAP svefngrímur vegna kæfisvefns. Gildir einnig um bitgóma.


  • Göngugreining.


  • Greining lesblindu.


Greiddar eru allt að 20.000 krónur á hverjum 12 mánuðum, allt að 100% af kostnaði.


Með umsókn skal fylgja greiðslukvittun. Ef ekki kemur fram staðfesting á greiðslu á reikningi þarf að skila viðbótar staðfestingu á greiðslu, t.d. úr heimabanka eða greiðslukvittun frá útgefanda reiknings.

Dánarbætur


Dánarbætur greiðast dánarbúi látins félagsmanns. 

Glasa- eða tæknifrjóvgun


Þú getur sótt um styrk vegna glasa- eða tæknifrjóvgunar.


Hægt er að sækja um vegna meðferðar í tvö skipti.


Greiddar eru allt að 100.000 krónur fyrir hvort skipti en þó að hámarki 50% af kostnaði. 


Með umsókn skal fylgja greiðslukvittun. Ef ekki kemur fram staðfesting á greiðslu á reikningi þarf að skila viðbótar staðfestingu á greiðslu, t.d. úr heimabanka eða greiðslukvittun frá útgefanda reiknings.

Laseraðgerðir OG sjónlags aðgerðir

Þú getur sótt um styrk vegna laser augnaðgerða, augasteinaskipta og annarra sjónlagsaðgerða án þátttöku Sjúkratrygginga Íslands.


Styrkur er einungis veittur einu sinni fyrir hvort auga.


Greiddar eru að hámarki 50.000 krónur fyrir hvort auga.


Með umsókn skal fylgja greiðslukvittun. Ef ekki kemur fram staðfesting á greiðslu á reikningi þarf að skila viðbótar staðfestingu á greiðslu, t.d. úr heimabanka eða greiðslukvittun frá útgefanda reiknings.

Heyrnartækjastyrkur

Þú getur sótt styrk vegna kaupa á heyrnartækjum. 


Greiddar eru að hámarki 100.000 krónur á hverjum 36 mánuðum allt að 50% af kostnaði.


Með umsókn skal fylgja greiðslukvittun. Ef ekki kemur fram staðfesting á greiðslu á reikningi þarf að skila viðbótar staðfestingu á greiðslu, t.d. úr heimabanka eða greiðslukvittun frá útgefanda reiknings.

Dvöl á heilsustofnun

Þú getur sótt um styrk vegna dvalar á Heilsustofnun NLFÍ og vegna meðferðar í Bláa lóninu. 


Greiddar eru  að hámarki 2.000 kr. á dag í allt að 42 almanaksdaga á hverjum 12 mánuðum þó að hámarki 50% af kostnaði. 


Með umsókn skal fylgja kvittun þar sem fram kemur kostnaður sjúklings og tímabil dvalar.

Ættleiðing erlendis frá

Þú getur sótt um styrk vegna ættleiðingar erlendis frá.

Styrkupphæð nemur allt að 200.000 krónum.


Hafið samband við þjónustuver vegna fylgigagna með umsókn.

Sjúkradagpeningar

Þú getur sótt um sjúkradagpeninga eftir að launatekjur falla niður og þú óvinnufær vegna veikinda eða slysa. 

Styrkur vegna gistingar innanlands

Þú getur sótt um styrk vegna gistingar innanlands.



Greiddar eru allt að 10.000 krónur á hverju almanaksári.


Með umsókn skal fylgja löglegur reikningur frá viðurkenndum þjónustuaðila þar sem fram kemur kennitala umsækjanda ásamt upplýsingum um dagsetningu gistinátta. 


Athugið þó að afsláttur gildir ekki vegna orlofshúsa Eflingar eða annarra stéttarfélaga

Heilsuefling - líkamsræktarstyrkur

Fræðslustyrkir

Title or question 3

Title or question