Fræðslusjóður Eflingar og opinberra launagreiðenda

Styrkir til einstaklinga

Fræðslusjóður Eflingar og opinberra launagreiðenda er fyrir þá sem vinna á opinberum vinnumarkaði, hjá Reykjavíkurborg, öðrum sveitarfélögum og ríkinu ásamt öðrum þeim aðilum sem Efling gerir  kjarasamninga við og taka mið af kjarasamningum fyrrgreindra aðila, svo sem hjúkrunarheimili, sjálfstætt starfandi leikskólar og Faxaflóahafnir.

Hámarksstyrkur fyrir félagsmenn sem greiða í Fræðslusjóð Eflingar og opinberra launagreiðanda er 150.000 kr.* á ári. 

  • Hægt er að nýta styrkinn til tómstundastarfs, náms eða ferða innanlands eða erlendis.
  • Styrkurinn er í formi endurgreiðslu og þarf félagsmaður að hafa lagt út fyrir kostnaði áður en sótt er um.
  • Hámarksstyrkur miðast við fullt starf og lækkar í samræmi við starfshlutfall.
  • Greidd eru allt að 100% af kostnaði.
  • Félagsfólk þarf að hafa greitt fyrir fræðslu / ferð á meðan það greiddi til Eflingar og reikningar ekki eldri en 12 mánaða.

Hámarks styrkur er 150.000,- kr á ári*

Hér að neðan má sjá hvernig hægt er að dreifa honum

Skrunaðu til hliðar til að sjá alla styrki

Starfstengt nám / námskeið

150.000,-*

Með umsókn skal fylgja frumrit reiknings þar sem nafn og kennitala félagsmanns kemur fram.  Ef ekki kemur fram staðfesting á greiðslu á reikningi þarf að skila til viðbótar staðfestingu á  greiðslu, t.d. úr heimabanka eða greiðslukvittun frá útgefanda reiknings.


Félagsmenn sem eru á skrá hjá Vinnumálastofnun þurfa einnig að skila inn staðfestingu  um styrkupphæð frá stofnuninni með umsókn, óháð hvort þeir fengu styrk eða ekki.


Nám þarf alltaf að vera greitt af félagsmanni.

Nám erlendis

Vegna umsóknar um styrk til náms eða námskeiðs sem tekið er erlendis þarf að leggja fram frumrit reiknings á upprunalegu tungumáli og á ensku, staðfesting á greiðslu úr heimabanka og eins þarf að vera sundurliðuð kostnaðarskipting.

*miðast við full réttindi

Umsókn stofnana um endurgreiðslu á kostnaði vegna fræðslu má sjá hér.

Heilsuefling - líkamsræktarstyrkur

Fræðslustyrkir

Title or question 3

Title or question