Mat á erlendu námi

Hvert fer ég með erlend námsgögn?

Ef þú hefur lokið námi erlendis getur verið gagnlegt að fá það metið á Íslandi. Mat getur nýst ef þú vilt sækja um nám, sýna fram á menntun þína í starfsumsókn eða kanna hvort námið veiti réttindi til að starfa hér á landi.

Rétt leið fer eftir því hvaða nám þú hefur lokið og hvað þú vilt nota matið í.

ENIC/NARIC er opinber þjónusta sem tekur við umsóknum um mat á erlendu námi.

Ég hef lokið framhaldsskólanámi erlendis

Ég hef lokið háskólanámi erlendis

Ég lærði til starfs sem krefst starfsréttinda

Ég er með nám frá Danmörku, Finnlandi, Noregi, Póllandi eða Svíþjóð

Ég hef starfsreynslu en ekki formlegt nám

Kostar að fá nám metið?

Almennt akademískt mat hjá ENIC/NARIC er gjaldfrjálst. Það á við um mat á erlendu framhaldsskólanámi og háskólanámi.

Annar kostnaður getur þó komið til, til dæmis vegna þýðinga á gögnum eða ef sótt er um sérstakt starfsleyfi hjá öðrum aðila.


Gott að hafa tilbúið

Það getur flýtt fyrir að safna gögnum áður en þú sækir um mat.

Dæmi um gögn sem geta nýst:

  • prófskírteini
  • yfirlit yfir áfanga eða einkunnir
  • lýsing á námi, ef hún er til
  • þýðingar á gögnum, ef þess er óskað
  • ferilskrá eða upplýsingar um starfsreynslu, ef hún skiptir máli

Þú þarft ekki að vera með allt tilbúið áður en þú biður um aðstoð.


Ekki viss hvert þú átt að leita?

Byrjaðu á náms- og starfsráðgjöf.

Ráðgjafi getur hjálpað þér að átta þig á því hvort þú eigir að leita til ENIC/NARIC, skóla, stjórnvalds, fræðsluaðila eða annars aðila.