
Reglur og ábyrgð félagsfólks:
• Leigutaki er ábyrgðaraðili fyrir orlofshúsinu/íbúðinni og afhendast lyklar til hans. EKKI er leyfilegt að framselja leigurétt sinn til annarra.
• Tjón af völdum leigutaka eða gesta hans eru að fullu á ábyrgð leigutaka.
• Leigutaka ber að tilkynna umsjónarmanni strax ef eitthvað er ábótavant eða tjón hefur orðið á meðan á dvöl stendur.
• Bannað er hafa gæludýr nema að annað sé tekið fram á leigusamningi.
• Virða ber hversu margir geta gist í hverju orlofshúsi.
• Leigutaki er ábyrgur fyrir þrifum og umgengni og ber að kynna sér húsreglur. Ávallt skal skila húsi vel hreinu.
• Umsjónarmaður yfirfer húsin eftir hverja leigu.
• Reykingar og notkun ólöglegra vímuefna eru stranglega bönnuð og geta leitt til tafarlausrar brottvísunar úr húsinu.
• Þurfi umsjónarmaður að þrífa eftir dvöl leigutaka er það á kostnað leigutaka án frekari fyrirvara og getur varðað útilokun frá leigu. Þrifagjald er 50.000 krónur.
• Það er stranglega bannað að hlaða rafbíla við húsin.
• Virða skal friðhelgi annarra á svæðinu. Öll óþarfa umferð og hávaði eftir kl. 24:00 er óheimil.
• Nauðsynlegt er að leigutaki kynni sér innihald leigusamnings varðandi frekari upplýsingar.
• Leigutaki þarf að kanna færð á vegum á vetrartíma, þar sem ekki er hægt að tryggja snjómokstur alla daga.
Upplýsingar fyrir leigutaka orlofshúsa
Þetta þarftu að vita
Góð umgengni er okkar hagur!
- ATH: Óheimilt er að hlaða rafmagnsbíla við húsin nema hleðslustöð sé til staðar.
- Munið að hafa leigusamning meðferðis þegar farið er í orlofhús og lesa hann vel yfir. Leigusamning má nálgast rafrænt inn á mitt.efling.is, undir orlofskostir.
- Á
leigusamningi
koma fram allar nauðsynlegar upplýsingar og skilmálar sem mikilvægt er að kynna sér vel þegar farið er í orlofshús. Þar er að finna upplýsingar um hvar nálgast má lykla, númer á lyklaboxum og öryggishliðum þar sem við á, komu- og brottfarartíma og símanúmer umsjónarmanns.
Símanúmer umsjónarmanns kemur fram á leigusamningi. Lyklar að Hvammi eru afhentir á skrifstofu Eflingar. Á öðrum stöðum þar sem eru lyklabox skiptir komutími minna máli, á leigusamningi er að finna upplýsingar um komutíma, númer á lyklaboxi og öryggishliði þar sem við á.
- Öllum húsum Eflingar fylgja efni til að þrífa, uppþvottalögur og burstar, gólfsápa og wc hreinsir. Gólfþveglar og moppur eru til staðar svo og kústar og ryksuga. Ef eitthvað af þessu vantar þegar komið er í húsið þarf að láta umsjónarmann vita eins fljótt og auðið er svo hægt sé að bregðast við.
- Nauðsynlegt er að taka með lök, sængur- og koddaver, handklæði, viskastykki, borðtuskur, handsápu og salernispappír.
- Orlofshús og íbúðir Eflingar eru með svipuðum búnaði, ætluð fyrir 5 til 10 manns eftir stærð. Öll eldhúsáhöld eiga að vera til staðar; ísskápur, eldavél og örbylgjuofn. Sængur, koddar, barnastóll og barnarúm, sturta, sjónvarp, útvarp og gasgrill. Ef eitthvað af þessu vantar þegar komið er í húsið þarf að láta umsjónarmann vita eins fljótt og auðið er svo hægt sé að bregðast við.
- Leigutaka er óheimilt að framselja leigurétt sinn
- Dýrahald er bannað í orlofshúsum Eflingar nema að annað sé tekið fram á leigusamningi. Brot á þessum reglum getur valdið því að viðkomandi félagsmaður verði útilokaður fá úthlutun framvegis.
- Ganga skal vel um svæðið og virða friðhelgi annarra.
Öll óþarfa umferð og hávaði eftir kl 00:00 er óheimil.
Brot á þessum reglum veldur því að viðkomandi félagsmaður verði útlokaður frá úthlutun framvegis.
*Með fyrirvara um breytingar
VIÐ KOMU
- Leigusamningur berst í tölvupósti, en þar má finna:
- hvar nálgast má lykla
- númer á lyklaboxum/öryggishliðum
- komu- og brottfaratíma
- símanúmer umsjónarmanns
- Þú þarft að koma með:
- Lök, sængur- og koddaver
- Handklæði
- Viskastykki, borðtuskur
- Handsápu
- Salernispappír
VIÐ BROTTFÖR
- Þrífa þarf:
- Húsið: gólf, borð, uppvask, salerni osfrv.
- Grillið
- Heita pottinn.
- Ganga vel frá gluggum og hurðum, að allt sé lokað og læst.
- Skila lykli til umsjónarmanns eða í lyklabox. (eftir því sem við á).
- Alls ekki taka hita af húsinu við brottför.
Almenn réttindi
Félagsfólk þarf að eiga minnst 6 mánaða samfellda félagasögu og hafa náð 20 ára aldri. Gildir það ákvæði almennt um umsækjendur orlofshúsa. Hver félagsmaður með réttindi getur bókað orlofshús í vetrarleigu einu sinni fyrir áramót og einu sinni eftir áramót. Eina sem þarf að gera er að skrá sig inn á Mínar síður með rafrænum skilríkjum. Þeir sem ekki eru með rafræn skilríki geta haft samband við skrifstofu eða fengið leiðbeiningar í gegnum tölvupóst orlof@efling.is
Félagsfólk í atvinnuleit sem greiðir félagsgjöld af atvinnuleysisbótum viðheldur rétti sínum til að leigja orlofshús enda hafi viðkomandi verið sjóðfélagi í a.m.k. 6 mánuði samfellt áður en hann varð atvinnulaus. Sama gildir um félagsfólk með fullgilda félagsaðild. Félagsfólk sem lætur af störfum vegna aldurs eða örorku á rétt á orlofhúsum samkvæmt punktaeign sinni þar til hún er uppurin eða allt til loka 6. árs eftir töku elli- eða örorkulífeyris, hvort sem kemur fyrst.

