Starfsþróun
Viltu styrkja stöðu þína í starfi?
Eflingarfélagar búa yfir mikilli reynslu. Hér finnur þú leiðir til að byggja ofan á þá reynslu, sækja námskeið, fá ráðgjöf, láta meta nám eða reynslu og kanna rétt þinn til styrkja.
Þú þarft ekki að vita nákvæmlega hvað þú vilt gera næst. Fyrsta skrefið getur verið að fá aðstoð við að skoða möguleikana.

Hvar viltu byrja?
Ekki viss hvar þú átt að byrja? Veldu það sem passar best við þína stöðu.
Ég vil fá ráðgjöf
Náms- og starfsráðgjafi getur hjálpað þér að skoða reynslu þína, áhugasvið, styrkleika og möguleika í námi
eða starfi.
Ég vil fara á fagnámskeið
Fagnámskeið tengjast ákveðnum störfum eða starfsgreinum. Þau geta hjálpað þér að byggja upp þekkingu og styrkja stöðu þína í starfi.
Ég vil fara á fræðsluviðburð
Fræðsluviðburðir eru styttri erindi eða námskeið um afmörkuð efni, til dæmis réttindi, laun, starfslok, íslensku eða stafræna færni.
Ég vil fá reynslu mína metna
Ef þú hefur unnið lengi í ákveðnu starfi getur raunfærnimat verið leið til að fá færni þína metna og viðurkennda.
Ég vil kanna hvort erlent nám fáist metið á Íslandi
Skoðaðu hvert þú getur leitað til að fá erlent nám metið á Íslandi.
Ég vil sækja um fræðslustyrk
Eflingarfélagar geta sótt um fræðslustyrk vegna náms, námskeiða eða annarrar starfsþróunar.

