Á tímamótum – starfslokanámskeið

Réttindi

Ertu farin/n að huga að starfslokum? Þá stendur þér til boða að sækja námskeið Eflingar þar sem farið er yfir hagnýtar upplýsingar varðandi tímamótin. Að hætta á vinnumarkaði þarf að undirbúa vel. Breytingin hefur mikil áhrif á líf fólks og er stórt skref að stíga. Með góðum undirbúningi er hægt að gera nýja hlutverkið í lífinu jákvætt.

Á námskeiðinu fjalla sérfræðingar til að mynda um sjúkratryggingar, lífeyrisréttindi, heilsu og réttindi hjá stéttarfélaginu og svara fyrirspurningum frá þátttakendum. Einnig verður fjallað um hvað er í boði í félagsstarfi og fræðslu fyrir fólk sem er komið á aldur.

Boðið er upp námskeiðið á íslensku, ensku og pólsku.

Íslenska: 14.-15. nóvember 2022
Íslenska: 8.-9. mars 2023
Enska: 28. mars 2023
Pólska: 29. mars 2023

Námskeiðið er haldið í samstarfi við Mími.

Kennsla fer fram í húsnæði Eflingar, Guðrúnartúni 1, 4. hæð og er félagsmönnum að kostnaðarlausu.

Til að skrá sig á námskeiðið smellið þið á þá dagsetningu sem hentar ykkur hér fyrir neðan og fyllið svo út skráningareyðublað.

Námskeið á dagskrá

Á tímamótum – starfslokanámskeið (pólska)

— Efling, Guðrúnartúni 1

29. mars 2023, kl. 18-21 Ertu farin/n að huga að starfslokum? Þá stendur þér til boða …

29. mar arrow_forward

Á tímamótum – starfslokanámskeið (enska)

— Efling, Guðrúnartúni 1

28. mars 2023, kl. 18-21 Ertu farin/n að huga að starfslokum? Þá stendur þér til boða …

28. mar arrow_forward

Á tímamótum – starfslokanámskeið (íslenska, mars)

— Atburður liðinn

8. og 9. mars 2023, kl. 18-21 Ertu farin/n að huga að starfslokum? Þá stendur þér …

8. mar arrow_forward

Á tímamótum – starfslokanámskeið (íslenska, nóv)

— Atburður liðinn

14. og 15. nóvember 2022, kl. 18-21 Ertu farin/n að huga að starfslokum? Þá stendur þér …

14. nóv arrow_forward