Fréttir

fréttir frá eflingu

Fréttir 2026

Eftir Sigrún Helga Efling • 23. nóvember 2026
Miðasalan er hafin á jólaball Eflingar á Mínum síðum og verður opin til 4.desember. Árlegt jólaball Eflingar verður haldið með pompi og prakt laugardaginn 12. desember, í Gullhömrum í Grafarholti, og hefst gleðin klukkan 13.00. Að venju verður mikið um dýrðir á ballinu. Jólasveinar kíkja í heimsókn, hljómsveit hússins heldur uppi fjörinu meðan gestir syngja og ganga í kringum jólatréð. Gómsætar veitingar og jólaleg sætindi verða á boðstólnum. Miðasalan er hafin og stendur til 4. desember. Miðaverð er 500 krónur og hægt verður að kaupa miða í vefverslun Eflingar á Mínum síðum. Hver félagsmaður getur keypt allt að fimm miða. Jólakveðjur Efling stéttarfélag
Eftir Ísak Jónsson • 19. nóvember 2026
Efling stendur fyrir bíósýningu fyrir félagsmenn sína miðvikudaginn 25. nóvember. Sýnd verður grínmyndin Triangle of Sadness í Bíó Paradís kl. 18:45. Triangle of Sadness fjallar um fyrirsætupar sem lifir glamúrlífi. Þau fara í lúxussiglingu fyrir ofurríka, þar sem félagsleg staða, völd og fáránlegt snobb ráða ríkjum. Þegar skyndilegt áfall verður neyðast eftirlifendur til að bjarga sér á eyðieyju, þar sem forréttindi þeirra missa gildi sitt og brothætt eðli valds og stéttaskiptingar kemur í ljós. Myndin hlaut hinn eftirsótta gullpálma á Cannes kvikmyndahátíðinni árið 2022. Miðinn kostar 500kr. og innifalið er popp og gos eða djús. Hámark 5 miðar fyrir hvern félagsmann. Þú kaupir miðann á mínum eflingar hér .
Eftir Sunna Björg Gunnarsdóttir • 18. nóvember 2026
Nú fer að líða að útborgun desemberuppbótar fyrir árið 2026.
Eftir Sigrún Helga Efling • 17. nóvember 2026
Breytingar verða á úthlutunarreglum fræðslustyrkja hjá þeim félagsmönnum sem starfa á almenna markaðinum. Breytingarnar munu taka gildi 1. janúar 2027. Breytingar á reglum voru ákveðnar af stjórn Starfsafls. Starfsafl er starfsmenntasjóður fyrir þá félagsmenn sem starfa hjá einkafyrirtæki og sem starfa samkvæmt kjarasamningum Eflingar og SA. Breytingin felur það í sér að eingöngu verður hægt að sækja um styrk vegna tungumálanáms ef námið fer fram í framhalds- háskóla eða hjá viðurkenndum fræðsluaðila. Við hvetjum alla félagsmenn sem eiga rétt til styrkja í gegnum Starfsafl til að kynna sér reglurnar vel. Frétt frá Starfsafli: Eftir 1. janúar verður eingöngu hægt að sækja um styrk vegna tungumálanáms ef námið fer fram í framhalds – eða háskóla eða hjá fræðsluaðila sem er á þessum lista hér , Markmið breytingarinnar er að einfalda og samræma reglur sjóðsins og tryggja að sömu grunnviðmið gildi um tungumálanám og aðra styrkhæfa starfsmenntun. Samhliða þessum breytingum verður listi yfir fræðsluaðila sem starfsmenntasjóðirnir hafa samþykkt sérstaklega, sjá hér, í íslensku- og öðru tungumálanámi, lagður niður. Núverandi listi gildir til áramóta og ekki verður bætt við nýjum fræðsluaðilum fram að þeim tíma. Umsóknir sem berast vegna náms sem tekið er á árinu 2026, með reikningum á gjalddaga innan ársins, verða afgreiddar samkvæmt reglum en umsóknum með reikningum sem gefnir eru fram í tímann, vegna náms á árinu 2027, verður hafnað án undantekninga. Hvað þýðir þetta fyrir félagsfólk ? Í breytingunni felst að allt tungumálanám sem tekið er í framhalds- og háskólum, hjá símenntunarmiðstöðvum og öðrum viðurkenndum fræðsluaðilum verður áfram styrkt samkvæmt reglum sjóðsins, með sama hætti og önnur styrkhæf starfsmenntun. Hér má sjá lista yfir viðurkennda fræðsluaðila Frá og með 1. janúar 2027 verður ekki veittur styrkur vegna íslensku eða annars tungumálanáms hjá fræðsluaðilum sem ekki hafa formlega viðurkenningu stjórnvalda, svo sem sjálfstætt starfandi fræðsluaðilum eða vegna áskriftar að tungumálaöppum. Nánari grein um breytingarnar og forsendur þeirra.
Eftir Ísak Jónsson • 12. nóvember 2026
Efling – stéttarfélag kallar eftir tilnefningum til setu í trúnaðarráði félagsins 2027-2028. Í trúnaðarráði sitja 115 félagsmenn ásamt 15 manna stjórn félagsins. Samkvæmt lögum Eflingar hefur trúnaðarráð æðsta vald í málefnum félagsins. Kjörtímabil þess hefst 1. janúar 2027 og stendur til 31. desember 2028. Trúnaðarráð fundar að jafnaði mánaðarlega yfir vetrartímann. Allir fullgildir félagsmenn í Eflingu geta tilnefnt sjálfan sig eða annan fullgildan félagsmann. Uppstillingarnefnd félagsins tekur við tilnefningum og setur saman tillögu að lista nýs trúnaðarráðs. Við val á listann verður tekið tillit til reynslu en einnig þess að listinn endurspegli félagið í heild sinni með hliðsjón af atvinnugrein, aldri, kyni, uppruna og fleiri þáttum. Tilnefningum skal skilað með því að fylla út eyðublaðið hér að neðan. Þær skulu berast eigi síðar en fyrir miðnætti miðvikudaginn 18. nóvember 2026.
Eftir Sigrún Helga Efling • 12. nóvember 2026
 Árlegt jólaball Eflingar verður haldið með pompi og prakt laugardaginn 12. desember, í Gullhömrum í Grafarholti, og hefst gleðin klukkan 13.00. Að venju verður mikið um dýrðir á ballinu. Jólasveinar kíkja í heimsókn, hljómsveit hússins heldur uppi fjörinu meðan gestir syngja og ganga í kringum jólatréð. Gómsætar veitingar og jólaleg sætindi verða á boðstólnum. Miðasalan opnar mánudaginn 23. nóvember og stendur til 4. desember. Miðaverð er 500 krónur og hægt verður að kaupa miða í vefverslun Eflingar á Mínum síðum. Hver félagsmaður getur keypt allt að fimm miða. Jólakveðjur Efling stéttarfélag

Fréttir 2025

Fréttir 2024

Fréttir 2023

Fréttir 2022

Fréttir 2021

Fréttir 2020

Fréttir 2019

Fréttir 2018

Fréttir 2017

Fréttir 2016

Fréttir 2015