Efling kallar eftir tilnefningum til setu í trúnaðarráði
We got it.
Thank you for contacting us.
We’ll get back to you as soon as possible.
Efling – stéttarfélag kallar eftir tilnefningum til setu í trúnaðarráði félagsins 2027-2028.
Í trúnaðarráði sitja 115 félagsmenn ásamt 15 manna stjórn félagsins. Samkvæmt lögum Eflingar hefur trúnaðarráð æðsta vald í málefnum félagsins. Kjörtímabil þess hefst 1. janúar 2027 og stendur til 31. desember 2028. Trúnaðarráð fundar að jafnaði mánaðarlega yfir vetrartímann.
Allir fullgildir félagsmenn í Eflingu geta tilnefnt sjálfan sig eða annan fullgildan félagsmann. Uppstillingarnefnd félagsins tekur við tilnefningum og setur saman tillögu að lista nýs trúnaðarráðs.
Við val á listann verður tekið tillit til reynslu en einnig þess að listinn endurspegli félagið í heild sinni með hliðsjón af atvinnugrein, aldri, kyni, uppruna og fleiri þáttum.
Tilnefningum skal skilað með því að fylla út eyðublaðið hér að neðan.
Þær skulu berast eigi síðar en fyrir miðnætti miðvikudaginn 18. nóvember 2026.


