
Staðgengill fyrir undirtitil færslunnar þinnar
Staðgengill fyrir efni færslunnar. Þetta er þar sem innihald bloggfærslunnar þinnar fer. Til að bæta við græjum og sérsníða texta og myndir fyrir einstakar færslur, farðu í Stjórna færslum. Þaðan geturðu breytt núverandi færslu eða bætt við nýrri.

Kröfuganga:
Efling stéttarfélag hvetur félagsfólk til að fjölmenna í kröfugöngu 1. maí og taka alla fjölskylduna með. Safnast verður saman fyrir gönguna kl. 13:00 á Skólavörðuholti. Gangan leggur af stað kl. 13:30. Gengið verður niður á Ingólfstorg þar sem flutt verða ávörp og skemmtiatriði.
Fjölskylduhátíð Eflingar í Kolaportinu
Á milli klukkan 15:00 og 17:00, strax að lokinni dagskrá á Ingólfstorgi, hefst fjölskylduhátíð Eflingar í Kolaportinu.
Í boði verður:
- Pulsuvagn, hamborgaravagn 🌭🍔
- ísvagn 🍧
- Kandífloss og popp 🍭🍿
- Kaffi og kökur ☕ 🍰
- Lúðrasveit kemur og spilar
- Blöðrulistamaður verður á staðnum
- Börn geta fengið andlitsmálningu
- Sirkus bregður á leik 🎪🤡
- …og fleira!
Miðinn kostar aðeins 500 kr og allt er innifalið í verði. Hver Eflingarfélagi getur keypt allt að fimm miða. Félagsfólk getur keypt miða á vefverslun Eflingar á Mínum síðum.
Athugið að hafa tilbúna kvittun fyrir miðakaupum við inngang hússins.
Opnað hefur verið fyrir miðasölu á Mínum síðum.
Leiðbeiningar fyrir vefverslun Eflingar
Hér fyrir neðan má sjá myndir frá 1. maí kröfugöngunni og fjölskylduskemmtun Eflingar í fyrra:









Gleðilegan baráttudag verkalýðsins, 1. maí.

