Staðgengill fyrir undirtitil færslunnar þinnar
Staðgengill fyrir efni færslunnar. Þetta er þar sem innihald bloggfærslunnar þinnar fer. Til að bæta við græjum og sérsníða texta og myndir fyrir einstakar færslur, farðu í Stjórna færslum. Þaðan geturðu breytt núverandi færslu eða bætt við nýrri.
Miklar sviptingar á vinnumarkaði
Um 2000 félagar í Eflingu á atvinnuleysisskrá
Fjöldi félagsmanna Eflingar sem eru á skrá hjá Vinnumálastofnun eru um tvö þúsund manns. Þar af störfuðu um 450 manns við störf sem tengjast bygginga- og mannvirkjagerð.
Frá 2005 til 2008 fjölgaði félagsmönnum Eflingar um fimm þúsund en í febrúar 2005 voru þeir um 17.400 manns en um 22.500 í febrúar 2008. Samkvæmt skráningartölum fyrir febrúar 2009 virðist félagsmannafjöldinn vera kominn í svipaða tölu og hann var í febrúar 2005 eða ríflega 17 þúsund manns. Þetta er gríðarleg fækkun á svo skömmum tíma og ástæðan fyrir því að hópurinn skilar sér ekki í meira mæli inn í skráningu hjá Vinnumálastofnun skýrir sig að hluta til af því að hlutfall erlends vinnuafls var orðið mjög hátt á árinu 2008. Í febrúar 2008 var hlutfall erlends vinnuafls um 42% en er nú um 37% þannig að hluti af þessum hópi er nú væntanlega farinn af landi brott. Í febrúar 2005 var hlutfall erlenda hópsins um 18% og er því líklegt að hlutfallið muni eitthvað lækka áfram úr því sem það er nú.
Atvinnuleysið mest í byggingageiranum
Þau störf sem hafa tapast eru langfjölmennust í byggingageiranum en þau virðast nú vera komin í svipaða tölu og þau voru í febrúar 2005 eða um 1500 manns en í febrúar 2008 voru tæplega 4þúsund manns starfandi í þessum geira. Hlutfall erlends vinnuafls í þessari atvinnugrein var mjög hátt 2008 eða yfir 60%.
Breiður starfahópur hjá Eflingu
Það er mikill styrkur fyrir félagið að félagsmenn Eflingar starfa á mjög breiðu sviði en það er ljóst að hin snögga atvinnuleysisaukning kemur mishart niður á atvinnugreinar og því hefur félagið meira bolmagn til að styðja við bakið á þeim félagsmönnum sem misst hafa vinnuna. Um 80% af félagsmönnum starfar á almenna markaðnum við ólík störf svo sem ýmsan iðnað, hótel- og veitingageira, bensínafgreiðslustörf, mötuneytisstörf, ræstingar og fleira. Þá starfa um 10% af félagsmönnum Eflingar hjá ríki, hjúkrunarheimilum og sjálfseignarstofnunum. Þeir sem starfa hjá Reykjavíkurborg og öðrum sveitarfélögum telja um 10%.

