56 launkröfur upp á ríflega 46 milljónir króna – Ársfjórðungsskýrsla Kjaramálasviðs komin út

Staðgengill fyrir undirtitil færslunnar þinnar

Staðgengill fyrir efni færslunnar. Þetta er þar sem innihald bloggfærslunnar þinnar fer. Til að bæta við græjum og sérsníða texta og myndir fyrir einstakar færslur, farðu í Stjórna færslum. Þaðan geturðu breytt núverandi færslu eða bætt við nýrri.

Dagsetning

18-01-21

deila

Alls voru 186 ný mál skráð á Kjaramálasviði Eflingar á fjórða ársfjórðungi nýliðins árs að því er fram kemur í nýútkominni Ársfjórðungskýrslu sviðsins. Af heildarfjölda mála eru 56 launkröfur upp á ríflega 46 milljónir króna. Fimm eða fleiri opnar launakröfur liggja hjá tveimur fyrirtækjum upp á samtals um 17 milljónir króna. Misvel gengur að innheimta kröfurnar og berst stéttarfélagið fyrir því að stjórnvöld efni loforð sitt um sektarheimild “févíti” í því skyni að bæta árangur innheimtunnar. Af heildarfjölda launakrafna voru 15 kröfur í þrotabú upp á 17,3 mkr.Af hátt í 25.000 greiðandi félögum í Eflingu voru um 54% af erlendum uppruna í nóvember. Hins vegar var hlutfall félagsmanna af erlendum uppruna sem leituðu til Kjaramálasviðs 64% á ársfjórðungnum. Mörg mál tengjast greiðslu uppsagnarfrests og kemur það heim og saman við að af 3.711 atvinnulausum Eflingarfélögum voru 75% af erlendum uppruna og 25% af íslenskum uppruna í október síðastliðnum.Atvinnuleysi meðal Eflingarfélaga var á þessum tíma nokkuð hærra en annars staðar á vinnumarkaði. Atvinnuleysi meðal Íslendinga var 10,6% en atvinnuleysi meðal erlendra ríkisborgara 24% í nóvember skv. tölum Vinnumálastofnunar. Atvinnuleysi kemur því harðar niður á erlendum einstaklingum á vinnumarkaði en íslenskum og enn harðar niður á erlendu verka- og láglaunafólki en öðrum hópum erlendra starfsmanna á vinnumarkaði.Við þjónustu erlendra félagsmanna kemur sér vel að Efling býr yfir fjölda starfsmanna af ólíkum uppruna og með mikla tungumálakunnáttu. Meðal tungumála sem töluð eru reiprennandi í starfsmannahópnum má nefna ensku, pólsku, litháísku, lettnesku, rússnesku, mandarín kínversku og spænsku.Ársfjórðungsskýrsla Kjaramálasviðs