Áherslur ungs fólks í komandi kjarasamningum – ASÍ-UNG ályktar

Staðgengill fyrir undirtitil færslunnar þinnar

Staðgengill fyrir efni færslunnar. Þetta er þar sem innihald bloggfærslunnar þinnar fer. Til að bæta við græjum og sérsníða texta og myndir fyrir einstakar færslur, farðu í Stjórna færslum. Þaðan geturðu breytt núverandi færslu eða bætt við nýrri.

Dagsetning

19-09-18

deila

[et_pb_section fb_built=”1″ _builder_version=”3.0.47″ custom_padding=”0|0px|54px|0px|false|false”][et_pb_row _builder_version=”3.0.48″ background_size=”initial” background_position=”top_left” background_repeat=”repeat” custom_padding=”0|0px|27px|0px|false|false”][et_pb_column type=”4_4″ _builder_version=”3.0.47″ parallax=”off” parallax_method=”on”][et_pb_text _builder_version=”3.9″]Á fimmta þingi ASÍ-UNG komu ungliðar saman úr verkalýðshreyfingunni um allt land og ræddu sín á milli hvað bera eigi að leggja áherslu á í komandi kjarsamningum. Á þinginu var farið yfir hlutverk stéttarfélaga og þær áherslur sem ungt fólk vill sjá í komandi samningum. Kristján Þórður Snæbjarnarson, formaður Rafiðnaðarsambandsins, Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR og Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, fluttu erindi og tóku svo þátt í pallborðsumræðum ásamt tveimur stjórnarmönnum ASÍ-UNG, Eiríki Þór Theódórssyni og Hafdísi Ernu Ásbjarnardóttur. Miklar umræður sköpuðust varðandi stöðu ungs fólks á vinnumarkaði og er ljóst að fulltrúum finnst að víða megi gera betur til að styrkja stöðu þessa hóps.Þing ASÍ-UNG var haldið föstudaginn 14. september. ASÍ-UNG eru samtök ungs fólks á aldrinum 16-35 ára, innan verkalýðshreyfingarinnar sem sér til þess að hagsmunamál ungs fólks á vinnumarkaði séu ávallt á dagskrá Alþýðusambandsins.Meðfylgjandi ályktun var samþykkt í lok þingsins:

  • Þing ASÍ-UNG ályktar um nauðsyn þess marka skýra stefnu í húsnæðismálum til þess að tryggja ungu fólki húsnæði við hæfi. ASÍ-UNG telur það vera grundvallaratriði að allir hafi möguleika á öruggu búsetuformi sem hentar á viðráðanlegum kjörum.
  • ASÍ-UNG krefst þess að persónuafsláttur verði hækkaður þannig að lágmarkslaun verði skattlaus.
  • ASÍ-UNG krefst þess einnig að aldurstengd launamismunun verði afnumin með öllu enda er hún klárt brot á mannréttindum. Jafnframt gerir ASÍ-UNG kröfu um að ungt fólk eigi sæti við samningaborðið til þess að tryggja hagsmuni þess.
  • ASÍ-UNG leggur ríka áherslu á að vinnueftirlit verði aukið og viðurlög vegna brota á vinnustað verði hert.
  • Þing ASÍ-UNG leggur áherslu á jafnvægi milli einkalífs og vinnu. Brúa þarf bil milli fæðingarorlofs og leikskóla og auka orlofsrétt vegna vetrarfría í skólum.

Ný stjórn ASÍ-UNG var kosin á þinginu og hana skipa:Aðalstjórn:Alma Pálmadóttir- Efling, Gundega Jaunlina- Hlíf, Karen Birna Ómarsdóttir – Aldan, Margret Júlía Óladóttir- FVSA, Eiríkur Þór Theodórsson- Stétt Vest , Sindri Már Smárason- Afl, Ástþór Jón Tryggvason- VLFS, Aðalbjörn Jóhannsson- Framsýn og Margrét Arnarsdóttir- FÍR.Varastjórn:Kristinn Örn Arnarson- Efling, Ólafur Ólafsson- Eining Iðja, Hafdís Erna Ásbjarnardóttir- Einingu Iðja, Birkir Snær Guðjónsson- Afl ogElín Ósk Sigurðardóttir- Stétt Vest.[/et_pb_text][et_pb_image src=”https://old.efling.is/wp-content/uploads/2018/09/asi-ung-thing.jpg” _builder_version=”3.9″][/et_pb_image][et_pb_text _builder_version=”3.9″]Fulltrúar Eflingar á ASÍ UNG þinginu. Fv. Kristinn Örn Arnarson, Ingólfur Björgvin Jónsson, Þorsteinn Gunnlaugsson, Jamie Mcquilkin, Oddný Ófeigsdóttir og Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar sem var með erindi á þinginu.[/et_pb_text][/et_pb_column][/et_pb_row][/et_pb_section]