Áhrif tollalækkana á verð á fatnaði og skóm

Staðgengill fyrir undirtitil færslunnar þinnar

Staðgengill fyrir efni færslunnar. Þetta er þar sem innihald bloggfærslunnar þinnar fer. Til að bæta við græjum og sérsníða texta og myndir fyrir einstakar færslur, farðu í Stjórna færslum. Þaðan geturðu breytt núverandi færslu eða bætt við nýrri.

Dagsetning

09-12-15

deila

Um áramótin verða tollar afnumdir á fatnaði og skóm. Þetta eru 324 tollskránúmer. Er um að ræða ýmiskonar fatnað, t.d. notaðan fatnað, skófatnað, höfuðfatnað, leðurfatnað, loðskinn, fatnað úr plasti og gúmmí sem og fylgihluti þeirra; hnappar, tölur og rennilásar.Afnám tolla af fatnaði og skóm á að skila 13% meðallækkun verðs til neytenda á þeim vörum sem áður báru tollinn. En þetta er ekki svona einfalt. Þegar skoðað er hlutfall þeirra vara í flokknum sem bera toll kemur í ljós að það eru aðeins 60% þeirra vara sem fluttar eru til landsins sem bera toll. Miðað við það hlutfall ætti afnámið að skila 7,8% lækkun á liðnum fatnaður og skór í vísitölu neysluverðs.Þessar breytingar á tollum eru til hagsbóta fyrir neytendur. Í töflunni hér að neðan má sjá nokkur dæmi um 13% lækkun á hinum ýmsum fatnaði.Verðlagseftirlitið vonast til þess að afnám tollanna á fatnað og skóm skili sér sem fyrst til neytenda með lækkun á vöruverði. Mun verðlagseftirlit Alþýðusambandsins fylgjast vel með breytingunum og hvetur neytendur til hins sama.