
Staðgengill fyrir undirtitil færslunnar þinnar
Staðgengill fyrir efni færslunnar. Þetta er þar sem innihald bloggfærslunnar þinnar fer. Til að bæta við græjum og sérsníða texta og myndir fyrir einstakar færslur, farðu í Stjórna færslum. Þaðan geturðu breytt núverandi færslu eða bætt við nýrri.
Búið er að undirrita nýjan kjarasamning milli Eflingar stéttarfélags og NPA miðstöðvarinnar sem við á um aðstoðarfólk fatlaðs fólks í NPA.
Í kjarasamningnum er um að ræða sams konar hækkanir á launatöflum og í kjarasamningi Eflingar við SA, enda tekur þessi samningur mið af kjarasamningi Eflingar við SA.
Athygli er vakin á að ekki er tekið sérstaklega fram hækkun á orlofi og öðru sem náðist í kjarasamningi Eflingar við SA. Enda tekur þessi samningur mið af samningi Eflingar og SA á þeim liðum sem ekki eru sérstaklega tilgreindir í samningnum.
Hér fyrir neðan má sjá nýundirritaða kjarasamninga milli Eflingar og NPA:
Atkvæðagreiðsla um kjarasamningurinn er hafin og mun standa yfir til kl. 12 á hádegi mánudaginn 20. maí
Atkvæðisrétt á það félagsfólk sem vinnur eftir framangreindum kjarasamningum á félagssvæði Eflingar. Sé félagsmaður ekki á kjörskrá en telur sig eiga að vera á henni er hann beðinn að senda tölvupóst á netfangið felagsmal@efling.is með afriti af síðasta launaseðli eða ráðningarsamningi. Verði kjarasamningurinn samþykktur mun hann gilda frá 1. febrúar 2024 til 1. febrúar 2028.

