
Staðgengill fyrir undirtitil færslunnar þinnar
Staðgengill fyrir efni færslunnar. Þetta er þar sem innihald bloggfærslunnar þinnar fer. Til að bæta við græjum og sérsníða texta og myndir fyrir einstakar færslur, farðu í Stjórna færslum. Þaðan geturðu breytt núverandi færslu eða bætt við nýrri.
Atvinnuleysi á Íslandi í júní var um helmingi minna en atvinnuleysi í Evrópusambandsríkjunum og ríflega helmingi minna en á evru-svæðinu. Atvinnuleysi fór minnkandi á Íslandi milli mánaða öfugt við það sem gerðist ytra.
Skráð atvinnuleysi hér á landi var 3,1% í júní síðastliðnum, en hvorki Vinnumálastofnun né Hagstofan hafa enn birt tölur um atvinnuleysi í júlímánuði. Atvinnuleysi lækkaði úr 3,4% í maí, að því er kemur fram hjá Vinnumálastofnun, en var þó hærra en í júní 2023 þegar það mældist 2,9%.
Að meðaltali voru 6.722 atvinnulausir í júní síðastliðnum. Fleiri karlar en konur voru án vinnu, 3.784 karlar en 2.938 konur. Mest var atvinnuleysi á Suðurnesjum, 5,3% og hafði lækkað um 0,4 prósentustig frá því í maí. Minnst var atvinnuleysi á Norðurlandi vestra, 1%.
Árstíðaleiðrétt meðaltals atvinnuleysi í Evrópusambandsríkjunum í júní mældist samkvæmt Eurostat, tölfræðiskrifstofu Evrópusambandsins, 6%, og atvinnuleysi á evru-svæðinu mældist 6,5%. Það þýðir að um það bil 13,25 milljónir fólks hafi verið án atvinnu innan Evrópusambandsríkjanna, nokkru fleiri en í maí mánuði og sömuleiðis fleiri en á sama tíma fyrir ári síðan.
Verst var staðan á Spáni þar sem var 11,5% atvinnuleysi í júní, og í Grikklandi þar sem atvinnuleysi mældist 9,6%. Lægst mældist atvinnuleysi í Tékklandi, 2,7%, og í Póllandi, 3%.
Sé litið til næstu nágrannaríkja Íslands, Norðurlandanna, þá var atvinnuleysi þar talsvert meira en á Íslandi. Lægst mældist atvinnuleysi í Noregi í júní mánuði, 4,1%. Atvinnuleysi í Danmörku var 5,9% og 8,3% í bæði Svíþjóð og Finnlandi.

