Bætt rafræn þjónusta auðveldar ferli umsókna og styrkja

Staðgengill fyrir undirtitil færslunnar þinnar

Staðgengill fyrir efni færslunnar. Þetta er þar sem innihald bloggfærslunnar þinnar fer. Til að bæta við græjum og sérsníða texta og myndir fyrir einstakar færslur, farðu í Stjórna færslum. Þaðan geturðu breytt núverandi færslu eða bætt við nýrri.

Dagsetning

18-01-24

deila

Í janúar kláraði Efling að greiða út síðustu styrki ársins 2023. Árið 2023 voru greiddir 9.022 sjúkrastyrkir til 6.892 einstaklinga og 5.043 fræðslustyrkir til 4.649 einstaklinga.  

Styrkirnir voru allt frá líkamsræktarstyrkjum, gleraugnastyrkjum og upp í stóra fræðslustyrki. Þróun hefur orðið á verkferlum hjá þjónustusviði Eflingar og ný viðmið og mælikvarðar verið teknir upp. Með nýju félagakerfi og Mínum síðum hefur umsóknarferli um styrki og orlofshús einnig verið aðlagað og einfaldað svo ferlið verður hraðara og skilvirkara. Betri rafræn þjónusta hefur óneitanlega gert félagsfólki auðveldara fyrir að sækja þjónustu til Eflingar síðustu ár enda hefur félagsfólk tekið vel í rafrænar þjónustuleiðir og nýtt sér þær vel. Með þessu hefur tekist að bæta þjónustuna við félagsfólk með tímasparnaði og hraðari vinnslu umsókna og erinda. Efling mun kappkosta við að halda þeirri þróun áfram.   

Hér fyrir neðan má sjá fjöldi útgreiddra styrkja fyrir árið 2023.  

Starfsmenntastyrkir 
4.649 félagsmenn  
423.884.273 kr  
91.000 kr meðalstyrkur  
Styrkir Fjöldi umsækjenda Greitt í kr 
Starfsafl 3.053 277.061.351  
Sveitarfélag 839 80.759.533  
Kóparvogur/Seltjarnarnes 43 3.525.296 
Reykjavík 96 62.702.793
Sjúkrasjóðir Fjöldi umsækjenda Greitt í kr 
Styrkir alls 6892 240.773.615
Sjúkradagpeningar 2081 1.287.082.159 
Endurhæfing (sjúkraþjálfun) 1.093 19.901.406 
Gleraugnastyrkur 1.636 37.839.334 
Krabbameinsskoðun 599 8.442.664 
Heilsuræktarstyrkur 3.896 71.044.557 
Heilsustofnun 13 19.263.532
Dánarbætur 101 19.263.532 
Tæknifrjóvgun 76 8.497.520 
Heyrnartæki 38 3.372.056 
Laser augnaðgerð 48 3.958.018 
Sálfræðitímar 973 45.163.618 

(Tölur birtar með fyrirvara)