Baráttu- og skemmtisamkoma 1. maí

Staðgengill fyrir undirtitil færslunnar þinnar

Staðgengill fyrir efni færslunnar. Þetta er þar sem innihald bloggfærslunnar þinnar fer. Til að bæta við græjum og sérsníða texta og myndir fyrir einstakar færslur, farðu í Stjórna færslum. Þaðan geturðu breytt núverandi færslu eða bætt við nýrri.

Dagsetning

30-04-20

deila

Í fyrsta skipti frá því baráttudagur verkalýðsins var fyrst haldinn hátíðlegur árið 1923 getur íslenskt launafólk ekki safnast saman á 1. maí til að leggja áherslu á kröfur sínar. Við þessu er brugðist með útsendingu frá sérstakri skemmti-og baráttusamkomu sem flutt verður í Hörpu að kvöldi 1. maí og sjónvarpað á Rúv (kl. 19:40).Landsþekktir tónlistarmenn, skemmtiatriði og hvatningarorð frá forystu verkalýðshreyfingarinnar einkenna þennan viðburð sem verður að teljast sögulegur. Meðal listamanna sem koma fram eru Ragnheiður Gröndal, Bubbi Morthens, Amabadama, Jói P og Króli, Ellen Kristjáns og Auður, Jakob Birgisson uppistandari, KK og Lúðrasveit verkalýðsins.Þar sem engar verða kröfugöngurnar verður hægt að búa til sitt eigið kröfuspjald á Facebook og sýna stuðning sinn við baráttu verkalýðshreyfingarinnar í verki með því að merkja prófílmyndina sína 1. maí. Við hvetjum til þátttöku í baráttudeginum á félagsmiðlum og svo til áhorfs á Rúv um kvöldið.Að dagskránni í sjónvarpinu og viðburðum á samfélagsmiðlum standa eftirfarandi heildarsamtök launafólks: ASÍ, BHM, BSRB og KÍ.