
Staðgengill fyrir undirtitil færslunnar þinnar
Staðgengill fyrir efni færslunnar. Þetta er þar sem innihald bloggfærslunnar þinnar fer. Til að bæta við græjum og sérsníða texta og myndir fyrir einstakar færslur, farðu í Stjórna færslum. Þaðan geturðu breytt núverandi færslu eða bætt við nýrri.
Eflingarfélagar fjölmenntu í kröfugöngu og útifund á baráttudegi verkalýðsins, 1. maí. Má með sanni segja að merki félagsins hafi verið haldið hátt á lofti og verið áberandi í miðborg Reykjavíkur þann dag, og með því minnt á að það er vinna Eflingarfélaga sem skapar verðmætin í íslensku samfélagi. Mikill baráttuhugur var í Eflingarfélögum, sem kröfðust þeirrar virðingar og þeirra kjara sem þeir eiga sannarlega skilið að njóta.
Síðar um daginn var blásið til glæsilegrar fjölskylduhátíðar Eflingar í Hvalasafninu. Eflingarfélagar á öllum aldri komu þar saman ásamt fjölskyldum sínum og nutu frábærra skemmtiatriða og glæsilegra veitinga.
Meðfylgjandi eru myndir sem Birgir Ísleifur Gunnarsson tók á baráttudegi verkalýðsins þann 1. maí 2026.


























