
Staðgengill fyrir undirtitil færslunnar þinnar
Staðgengill fyrir efni færslunnar. Þetta er þar sem innihald bloggfærslunnar þinnar fer. Til að bæta við græjum og sérsníða texta og myndir fyrir einstakar færslur, farðu í Stjórna færslum. Þaðan geturðu breytt núverandi færslu eða bætt við nýrri.
Frá og með mánudeginum 21. október nk. verður bílastæðunum við Guðrúnartún 1 aðgangsstýrt með nýju kerfi í samstarfi við Securitas. Bílastæðin verða eingöngu ætluð gestum og starfsfólki hússins frá kl. 7.00 til 19.00 á virkum dögum og geta þeir aðilar sem ekki eiga erindi í húsið átt von á rukkun/gjaldtöku að upphæð 4.500 kr.Bílastæðin við Guðrúnartún 1 eru oftast þéttsetin og oft nánast ómögulegt að fá stæði. Því miður eiga margir sem leggja í bílastæðin ekki erindi í húsnæðið og því var ákveðið að fara þessa leið til að bæta þjónustu og aðgengi félagsmanna að skrifstofu Eflingar.Þarf að skrá bílnúmerFélagsmenn Eflingar sem heimsækja skrifstofuna þurfa að skrá bílnúmer ökutækis síns í kerfi sem staðsett verður í móttökurými Eflingar á 3. hæð og munu við það fá úthlutað tíma á stæðunum. Einnig verður skráningarbúnaður á 4. hæð hússins í fræðslusetri Eflingar fyrir þau sem sækja námskeið og fundi þar.

