
Staðgengill fyrir undirtitil færslunnar þinnar
Staðgengill fyrir efni færslunnar. Þetta er þar sem innihald bloggfærslunnar þinnar fer. Til að bæta við græjum og sérsníða texta og myndir fyrir einstakar færslur, farðu í Stjórna færslum. Þaðan geturðu breytt núverandi færslu eða bætt við nýrri.
Breytingar verða á úthlutunarreglum fræðslustyrkja hjá þeim félagsmönnum sem starfa á almenna markaðinum. Breytingarnar munu taka gildi 1. janúar 2027.
Breytingar á reglum voru ákveðnar af stjórn Starfsafls. Starfsafl er starfsmenntasjóður fyrir þá félagsmenn sem starfa hjá einkafyrirtæki og sem starfa samkvæmt kjarasamningum Eflingar og SA.
Breytingin felur það í sér að eingöngu verður hægt að sækja um styrk vegna tungumálanáms ef námið fer fram í framhalds- háskóla eða hjá viðurkenndum fræðsluaðila. Við hvetjum alla félagsmenn sem eiga rétt til styrkja í gegnum Starfsafl til að kynna sér reglurnar vel.
Frétt frá Starfsafli:
Eftir 1. janúar verður eingöngu hægt að sækja um styrk vegna tungumálanáms ef námið fer fram í framhalds – eða háskóla eða hjá fræðsluaðila sem er á þessum lista hér,
Markmið breytingarinnar er að einfalda og samræma reglur sjóðsins og tryggja að sömu grunnviðmið gildi um tungumálanám og aðra styrkhæfa starfsmenntun.
Samhliða þessum breytingum verður listi yfir fræðsluaðila sem starfsmenntasjóðirnir hafa samþykkt sérstaklega, sjá hér, í íslensku- og öðru tungumálanámi, lagður niður. Núverandi listi gildir til áramóta og ekki verður bætt við nýjum fræðsluaðilum fram að þeim tíma.
Umsóknir sem berast vegna náms sem tekið er á árinu 2026, með reikningum á gjalddaga innan ársins, verða afgreiddar samkvæmt reglum en umsóknum með reikningum sem gefnir eru fram í tímann, vegna náms á árinu 2027, verður hafnað án undantekninga.
Hvað þýðir þetta fyrir félagsfólk ?
Í breytingunni felst að allt tungumálanám sem tekið er í framhalds- og háskólum, hjá símenntunarmiðstöðvum og öðrum viðurkenndum fræðsluaðilum verður áfram styrkt samkvæmt reglum sjóðsins, með sama hætti og önnur styrkhæf starfsmenntun. Hér má sjá lista yfir viðurkennda fræðsluaðila
Frá og með 1. janúar 2027 verður ekki veittur styrkur vegna íslensku eða annars tungumálanáms hjá fræðsluaðilum sem ekki hafa formlega viðurkenningu stjórnvalda, svo sem sjálfstætt starfandi fræðsluaðilum eða vegna áskriftar að tungumálaöppum.
