Breytingar og framlenging á kjarasamningi við Reykjavíkurborg
Staðgengill fyrir undirtitil færslunnar þinnar
Staðgengill fyrir efni færslunnar. Þetta er þar sem innihald bloggfærslunnar þinnar fer. Til að bæta við græjum og sérsníða texta og myndir fyrir einstakar færslur, farðu í Stjórna færslum. Þaðan geturðu breytt núverandi færslu eða bætt við nýrri.
Í gær 6. júlí var gengið frá svipuðu samkomulagi við Reykjavíkurborg eins og gert var við ríkið síðastliðinn föstudag. Megináherslan var lögð á að hækka launataxta sem eru undir 180.000 kr. og kemur sú hækkun í þremur áföngum.
Sendur verður út kynningarbæklingur á næstunni og er stefnt að því að atkvæðagreiðslu um samkomulagið ljúki ekki seinna en 14 ágúst næstkomandi.
Aðalatriði samningsins:
- Núgildandi kjarasamningur framlengist til 30. nóvember 2010.
- Launatöflur hækka þrisvar á tímabilinu.
- Launataxtar. Mánaðarlaun fyrir dagvinnu allt að kr. 180.000 hækka 1. júlí 2009 og 1. nóvember 2009 um kr. 6.750.- en hækka minna frá 180.000 kr. að 210.000. Laun umfram 210.000 kr í júlí og 220.000 kr. í nóvember 2009 taka ekki hækkunum. Mánaðarlaun fyrir dagvinnu allt að kr. 180.000.- hækka 1. júní 2010 um kr. 6.500.- en hækka minna að kr. 225.000. Mánaðarlaun fyrir dagvinnu umfram kr. 225.000.- eru óbreytt.
- ~Tímamæld ákvæðisvinna í ræstingu hækkar.
- Lágmarkslaun fyrir fullt starf skulu vera kr. 156.750.- frá 1. júlí 2009 og kr. 163.500.- frá 1. nóvember 2009 og frá 1. júní 2010 verða þau 170.000.- Ákvæðið á ekki við sérstök átaksverkefni.
- Desember og orlofsuppbætur hækka.

