Staðgengill fyrir undirtitil færslunnar þinnar
Staðgengill fyrir efni færslunnar. Þetta er þar sem innihald bloggfærslunnar þinnar fer. Til að bæta við græjum og sérsníða texta og myndir fyrir einstakar færslur, farðu í Stjórna færslum. Þaðan geturðu breytt núverandi færslu eða bætt við nýrri.
Gleðilegt er að segja frá því að atvinnuleitendur fá greidda desemberuppbót fyrir jól en samkomulag um það náðist á Alþingi seint í gærkvöldi við afgreiðslu þingmála fyrir þinglok. Eygló Harðardóttir, félags- og húsnæðismálaráðherra, undirritaði í dag reglugerð um greiðslu desemberuppbótar til atvinnuleitenda. Full desemberuppbót er 51.783 kr.
Rétt til desemberuppbótar eiga atvinnuleitendur sem eru tryggðir innan atvinnuleysistryggingakerfisins og hafa staðfest atvinnuleit einhvern tíma á tímabilinu 20. nóvember til 3. desember 2013. Greiðslur verða í hlutfalli við lengd þess tíma sem viðkomandi hefur verið skráður atvinnulaus á þessu ári. Hafi fólk verið hluta ársins á vinnumarkaði á það rétt á hlutfallslegri greiðslu desemberuppbótar frá atvinnurekanda samkvæmt kjarasamningi. Óskert desemberuppbót nemur 51.783 kr. sem eru 30% af óskertum grunnatvinnuleysisbótum. Hjá þeim sem eiga hlutfallslegan rétt verður greiðslan ekki lægri en 12.946 kr. samkvæmt frétt á vef stjórnarráðsins.

