Formaður Eflingar fundaði með Átaki

Staðgengill fyrir undirtitil færslunnar þinnar

Staðgengill fyrir efni færslunnar. Þetta er þar sem innihald bloggfærslunnar þinnar fer. Til að bæta við græjum og sérsníða texta og myndir fyrir einstakar færslur, farðu í Stjórna færslum. Þaðan geturðu breytt núverandi færslu eða bætt við nýrri.

Dagsetning

26-10-26

deila

Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, fundaði í dag með Jónínu Rósu Hjartardóttur, formanni Átaks, félags fólks með þroskahömlun, og Heiðu Vigdísi Sigfúsdóttur, framkvæmdastjóra félagsins.

Á fundinum var meðal annars rætt um atvinnumöguleika félagsfólks Átaks. Einnig var rætt um mögulegt samstarf Eflingar og Átaks um vitundarvakningu um réttindi fólks með þroskahömlun á íslenskum vinnumarkaði.


Þá var rædd sú hugmynd að setja upp sérstakan flipa á vefsíðu Eflingar með efni á auðlesnu máli, enda eiga allir rétt á upplýsingum á máli sem þeir skilja.

Sólveig Anna segir fundinn hafa verið afar gagnlegan og skemmtilegan og kveðst vonast eftir góðu samstarfi við Átak.


Hægt er að nálgast upplýsingar um Átak og þeirra starf á heimasíðunni: https://okkaratak.is/