Efling fagnar frumvarpi um leigubremsu

Staðgengill fyrir undirtitil færslunnar þinnar

Staðgengill fyrir efni færslunnar. Þetta er þar sem innihald bloggfærslunnar þinnar fer. Til að bæta við græjum og sérsníða texta og myndir fyrir einstakar færslur, farðu í Stjórna færslum. Þaðan geturðu breytt núverandi færslu eða bætt við nýrri.

Dagsetning

06-10-26

deila

Stjórnvöld hafa lagt fram frumvarp um hömlur á hækkanir leigu, bæði fyrir íbúðarhúsnæði og atvinnuhúsnæði. Frumvarpið markar tímamót í reglun leigumarkaðarins á Íslandi sem hefur verið í algjörum ólestri, með óhóflegum hækkunum og miklu óöryggi leigjenda.


Efling hefur lengi barist fyrir innleiðingu á leigubremsu og lagði stjórn Eflingar útfærðar tillögur fyrir stjórnvöld síðastliðið vor.


Hið nýja frumvarp kemur að verulegu leyti til móts við þær tillögur Eflingar.


Helstu nýmælin eru eftirfarandi:

  • Mánaðarlegar hækkanir eru bannaðar. Minnst 12 mánuðir þurfa að líða milli hækkana, sem þurfa að vera samningsbundnar.
  • Árlegar hækkanir mega ekki verða meiri en hækkun verðlagsvísitölunnar, en leiga íbúðarhúsnæðis hefur hækkað mjög langt umfram almennt verðlag hér á landi á síðustu 10-15 árum. Þannig eru settar hömlur á einn af stærstu drifkröftum verðbólgunnar.
  • Sett eru viðmið um svigrúm til hækkana á leigu við upphaf og endurnýjun leigusamninga og tekið fyrir margþættar verðhækkanir á sama tíma.
  • Birtar verða reglulega viðmiðunartölur um markaðsverð á leigu eftir gerðum húsnæðis og staðsetningu sem verða leiðbeinandi við samninga um leiguverð.
  • Öryggi og neytendavernd leigjenda verða efld.


Efling hefði viljað ganga enn lengra, t.d. með því að miða þak á árlegar hækkanir leigu við verðlagsvísitölu án húsnæðisliðarins, sem hefði hægt meira á verðbólgunni, en frumvarpið miðar við almenna vísitölu neysluverðs. Þakið verður samt afar mikilvægt því leiga hefur hækkað langt umfram almennt verðlag á síðustu 10-15 árum.


Með frumvarpinu er í senn bættur hagur leigjenda svo um munar og um leið eru settar hömlur á mikilvægan þátt sem hefur magnað upp verðbólguna hér á landi á síðustu árum.


Mikilvægt er að frumvarpið fái skjóta afgreiðslu og komi til framkvæmda sem fyrst.