
Staðgengill fyrir undirtitil færslunnar þinnar
Staðgengill fyrir efni færslunnar. Þetta er þar sem innihald bloggfærslunnar þinnar fer. Til að bæta við græjum og sérsníða texta og myndir fyrir einstakar færslur, farðu í Stjórna færslum. Þaðan geturðu breytt núverandi færslu eða bætt við nýrri.
Efling – stéttarfélag sendi í morgun kröfu til embættis ríkissáttasemjara um að Aðalsteinn Leifsson víki sæti sökum vanhæfis í kjaradeilu Eflingar við Samtök atvinnulífsins. Er þess krafist að skipaður verði staðgengill hans til að fara með málið.
Í erindi Eflingar er meðhöndlun ríkissáttasemjara á málinu rakin. Rök eru leidd að því hann hafi með framgöngu sinni gefið skýrt tilefni til að draga óhlutdrægni sína í efa.
Ríkissáttasemjari lagði fram miðlunartillögu sína án þess að hann uppfyllti skilyrði laga um að ráðgast við Eflingu. Tillagan er efnislega samhljóða tilboði Samtaka atvinnulífsins, og kom í engum atriðum til móts við sjónarmið Eflingar. Þessar málsástæður og fleiri eru tíundaðar í erindi Eflingar.
Öll heildarsamtök launafólks á Íslandi hafa opinberlega gagnrýnt miðlunartillögu ríkissáttasemjara.

