Staðgengill fyrir undirtitil færslunnar þinnar
Staðgengill fyrir efni færslunnar. Þetta er þar sem innihald bloggfærslunnar þinnar fer. Til að bæta við græjum og sérsníða texta og myndir fyrir einstakar færslur, farðu í Stjórna færslum. Þaðan geturðu breytt núverandi færslu eða bætt við nýrri.
Föstudaginn 17. apríl sl. hitti formaður Eflingar, ásamt trúnaðarmönnum Eflingar hjá HB Granda að máli forsvarsmenn Granda í Reykjavík. Á fundinum var rædd sú staða í fyrirtækinu sem upp var komin vegna hárra arðgreiðslna til eigenda og mikillar hækkunar stjórnarlauna Granda. Þetta mál hefði haft mikil og neikvæð áhrif á stöðu samningaviðræðna um nýja kjarasamninga. Efling lagði mikla áherslu á skjót viðbrögð í málinu. Forstjóri HB Granda tók vel í málaleitan Eflingar og samsinnti að fyrirtækið hefði svigrúm til launahækkana og myndi bregðast við þessu erindi strax dagana eftir eins og fram hefur nú komið.
Forsvarsmenn Eflingar lögðu mikla áherslu á að fyrirtækið gæti með skjótum aðgerðum gagnvart starfsfólkinu og stéttarfélögunum haft mikil áhrif á það hvernig þessi deila þróaðist, en að óbreyttu myndi hún valda miklu tjóni á samningaviðræðum en mest um vert væri að bæta kjör fiskvinnslufólks sem ekki hefur notið jafnhárra bónusa og þar sem þeir gerast bestir í fiskvinnsluhúsum á landinu. Skjótvirkasta leiðin að mati Eflingar væri að hækka bónusa umtalsvert og voru lagðar fram upplýsingar á fundinum um málið. Þá var mikil áhersla lögð á að fyrirtækið yrði að bregðast hratt við þar sem bæði væri ólga meðal starfsmanna auk þess sem ráðstafanir HB Granda yrðu áfram í umræðunni að öllu óbreyttu. Efling lagði mikla áherslu á að fyrirtækið hefði samband við önnur stéttarfélög HB Granda í fiskvinnslu þannig að breytingarnar næðu til allra starfsmanna HB Granda.
Í hádeginu í dag verður gengið frá samkomulagi milli Eflingar og HB Granda sem felst í hækkunum á bónusum frá 357 kr. upp í kr. 500 í byrjunarlaunum til 650 kr. eftir starfsaldri.

