
Staðgengill fyrir undirtitil færslunnar þinnar
Staðgengill fyrir efni færslunnar. Þetta er þar sem innihald bloggfærslunnar þinnar fer. Til að bæta við græjum og sérsníða texta og myndir fyrir einstakar færslur, farðu í Stjórna færslum. Þaðan geturðu breytt núverandi færslu eða bætt við nýrri.

Samninganefnd Eflingar og samninganefnd ríkisins náðu í gær samkomulagi um nýjan kjarasamning og var hann undirritaður síðdegis í gær. Samningurinn gildir til 31. mars árið 2028, samþykki félagar í Eflingu stéttarfélagi hann. Atkvæðagreiðsla um samninginn mun hefjast á næstu dögum.
Launahækkanir samkvæmt samningnum eru í samræmi við þann ramma sem settur var í kjarasamningum Eflingar við Samtök atvinnulífsins á almenna markaðinum í vor. Laun hækka afturvirkt um 3,25% frá 1. apríl síðastliðnum, um 23.750 krónur. Sambærilegar launahækkanir koma til framkvæmd á sama tíma næstu þrjú ár einnig.
Þá hækka desember- og orlofsuppbót á samningstímanum. Desemberuppbót verður við lok samningstímans orðin 118 þúsund krónur og orlofsuppbót 64 þúsund krónur.
Þá eru gerðar ýmsar breytingar á greiðslum fyrir yfirvinnu, á vaktaálagi og bakvöktum, svo nokkuð sé nefnt.
Eflingarfélagar sem starfa eftir kjarasamningum stéttarfélagsins eru hvattir til að kynna sér samninginn og taka þátt í atkvæðagreiðslu um hann þegar hún hefst. Upplýsingar um atkvæðagreiðsluna verða birtar hér á síðu Eflingar á allra næstu dögum.

