
Staðgengill fyrir undirtitil færslunnar þinnar
Staðgengill fyrir efni færslunnar. Þetta er þar sem innihald bloggfærslunnar þinnar fer. Til að bæta við græjum og sérsníða texta og myndir fyrir einstakar færslur, farðu í Stjórna færslum. Þaðan geturðu breytt núverandi færslu eða bætt við nýrri.
Sendlar Wolt komu saman í félagsheimili Eflingar í dag
Sendlar hjá fyrirtækinu Wolt komu saman á fundi í félagsheimili Eflingar í dag til að undirbúa næstu skref í baráttu sinni fyrir bættum kjörum.
Störf sendla hjá Wolt og öðrum sambærilegum fyrirtækjum eru launavinna. Laun og réttindi eiga að vera í samræmi við íslenska kjarasamninga. Efling fordæmir það að verkafólk sé svikið um lágmarkskjör og þess í stað látið vinna undir skilmálum gerviverktöku.
Félagið styður baráttu Wolt-sendla á Íslandi fyrir bættum kjörum og mun beita sér, samhliða þeim, fyrir viðurkenningu á stöðu þeirra sem launamenn.
„Heimsendingarfyrirtækið Wolt stundar gerviverktöku. Sendlarnir standa utan stéttarfélaga og njóta fárra þeirra réttinda sem vinnandi fólk hér á landi lítur á sem sjálfsögð, svo sem veikindaréttar og framlags atvinnurekanda í lífeyrissjóð. Efling stendur með þeim þrátt fyrir að þeir séu ekki félagsmenn í stéttarfélaginu, enda lítum við á viðskiptamódel Wolt og hvernig fyrirtækið starfar sem aðför að réttindum alls verkafólks hér á landi,” sagði Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar.
Wolt sendlum er velkomið að hafa samband við félagið með því að senda tölvupóst á netfangið efling@efling.is.
