
Staðgengill fyrir undirtitil færslunnar þinnar
Staðgengill fyrir efni færslunnar. Þetta er þar sem innihald bloggfærslunnar þinnar fer. Til að bæta við græjum og sérsníða texta og myndir fyrir einstakar færslur, farðu í Stjórna færslum. Þaðan geturðu breytt núverandi færslu eða bætt við nýrri.
Sólveig Anna Jónsdóttir ritaði í gær 26. janúar svar fyrir hönd Eflingar til ríkissáttasemjara vegna svokallaðrar miðlunartillögu og erindis embættisins um framkvæmd atkvæðagreiðslu.
Í svarinu segir meðal annars eftirfarandi: „Efling-stéttarfélag telur að ríkissáttasemjari hafi ekki fullnægt skilyrðum laga nr. 80/1938, um stéttarfélög og vinnudeilur, og því sé ekki um að ræða lögmæta miðlunartillögu í skilningi laganna. Það sama á við um boðaða framkvæmd og fyrirkomulag atkvæðagreiðslunnar. Efling-stéttarfélag telur því nauðsynlegt að dómstólar leysi úr lögmæti aðgerða ríkissáttasemjara.“
Þá segir einnig: „Að lokum krefst Efling-stéttarfélag þess að fá allar fyrirliggjandi upplýsingar um öll samskipti sem ríkissáttasemjari, og starfsmenn embættisins, hafa átt við deiluaðila og aðra sem varða samráð í tengslum við undirbúning og ákvarðanatöku um tillöguna. Er m.a. óskað eftir að fá allar fyrirliggjandi skráningar um samskipti við þessa aðila á fundum, símleiðis, með smáskilaboðum, í tölvupósti, bréflega eða með öðrum hætti, sbr. 27. gr. upplýsingalaga nr. 140/2012.“
Bréfið dags. 26. janúar í heild sinni.
Að fengnum viðbrögðum frá ríkissáttasemjara ritaði Sólveig Anna aftur svar í morgun 27. janúar. Þar er óbreytt afstaða félagsins ítrekuð og erindi embættisins sagt ólögmætt og markleysa. Í lok svarbréfsins segir:
„Í tilefni af niðurlagi bréfs ríkissáttasemjara, sem sent var síðdegis í gær, er rétt að taka fram að réttur félagsfólks Eflingar-stéttarfélags felst fyrst og fremst í því að samninganefnd með lýðræðislegt umboð semji um kaup og kjör félagsmanna. Hinar ólögmætu aðgerðir ríkissáttasemjara hafa það markmið að svipta Eflingu-stéttarfélag og félagsmenn þess þeim grundvallarrétti.“
Bréfið dags. 27. janúar í heild sinni.
Stjórn Eflingar lýsti í gær vantrausti á ríkissáttasemjara. Félagið hafnaði lögmæti svonefndrar miðlunartillögu með yfirlýsingu fyrir hádegi í dag, og fordæmdi vinnubrögð ríkissáttasemjara.
Þá sendi ASÍ frá sér yfirlýsingu í gær þar sem segir að traust á embætti ríkissáttasemjara hafi skaðast og véfengt hvort ríkissáttasemjari hafi með miðlunartillögu sinni starfað innan þeirra valdheimilda sem embættinu eru settar.

