
Staðgengill fyrir undirtitil færslunnar þinnar
Staðgengill fyrir efni færslunnar. Þetta er þar sem innihald bloggfærslunnar þinnar fer. Til að bæta við græjum og sérsníða texta og myndir fyrir einstakar færslur, farðu í Stjórna færslum. Þaðan geturðu breytt núverandi færslu eða bætt við nýrri.

Ekki verður hægt að bóka orlofshús fyrr en í fyrsta lagi miðvikudaginn 10. janúar vegna uppfærslu á Mínum síðum.
Verið er að innleiða nýtt og betra félagakerfi og Mínar síður en yfirfærsla á gögnum frá gamla kerfinu yfir í hið nýja tekur óhjákvæmilega tíma. Vegna yfirfærslunnar verður einnig ekki hægt að sjá greiðslur í umsóknum á Mínum síðum og einhverjir gætu lent í því að geta ekki sótt um umsóknir eins og stendur.
Verið er að vinna að því að hraða yfirfærslunni eins og kostur er svo að félagar muni fá aðgengi að öllum sínum upplýsingum á nýjum Mínum síðum sem fyrst.
Nýtt félagakerfi fyrir Mínar síður verða notendavænar og aðgengilegar með öllum helstu þjónustuþáttum Eflingar, þar með talið bætt aðgengi að bókun orlofshúsa, umsóknum um styrki og ráðgjöf vegna kjarasamningstengdra málefna á hvorki meira né minna en átta tungumálum. Nýtt félagakerfi mun einnig hraða á afgreiðslu- og svartíma vegna erinda sem berast Eflingu sem skilar sér í betri þjónustu við félagsfólk.
Starfsfólk Eflingar þakkar biðlundina og biðst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.

