Erlendir starfsmenn yfir 20% í Eflingu
Staðgengill fyrir undirtitil færslunnar þinnar
Staðgengill fyrir efni færslunnar. Þetta er þar sem innihald bloggfærslunnar þinnar fer. Til að bæta við græjum og sérsníða texta og myndir fyrir einstakar færslur, farðu í Stjórna færslum. Þaðan geturðu breytt núverandi færslu eða bætt við nýrri.
Pólverjum fjölgað hratt á undanförnum mánuðum
Frá árinu 2000 hefur hlutfall erlendra starfsmanna á vinnumarkaði fjölgað úr 5% í yfir 20%. Langmesta aukningin hefur verið nú á undanförnum mánuðum og eru Pólverjar þar fjölmennastir eða yfir 1200 manns. Erlendir félagsmenn Eflingar eru nú um 4000.
Flestir starfa við ræstingar og í byggingarvinnu
Það kemur ekki á óvart að flestir erlendir starfsmenn eru í ræstingarstörfum og eins byggingarstörfum. Þó hefur þessi hópur í auknum mæli sótt inn á fleiri iðnaðarstörf og eins umönnunarstörf.
Skipting eftir aldri og kyni
Þegar aldurskipting erlendra félagsmanna er skoðuð, kemur í ljós að hún er talsvert frábrugðin aldursskiptingu almennt hjá félagsmönnum Eflingar. 70% erlendra félagsmanna eru milli 20 og 40 eða á hefðbundnum barnseignaraldri. Enda hefur komið í ljós að með auknu erlendu vinnuafli hefur samhliða orðið töluverð aukning erlendra barna í leik- og grunnskólum landsins.
Þá er kynjaskiptingin frábrugðnari hjá erlenda hópnum, en þar er fjöldi karla um 60% og konur eru um 40%. Meðal félagsmanna Eflingar almennt er skipting eftir kyni þannig að konur eru 55% og karlar 45%.

