
Staðgengill fyrir undirtitil færslunnar þinnar
Staðgengill fyrir efni færslunnar. Þetta er þar sem innihald bloggfærslunnar þinnar fer. Til að bæta við græjum og sérsníða texta og myndir fyrir einstakar færslur, farðu í Stjórna færslum. Þaðan geturðu breytt núverandi færslu eða bætt við nýrri.
Efling stéttarfélag leitar að fulltrúa á Þjónustusvið. Þjónustusvið sinnir almennri móttöku erinda og afgreiðslu umsókna í sjóði félagsins, orlofs-, fræðslu og sjúkrasjóð.
Leitað er að aðila sem hefur gott vald á íslensku og ensku. Kunnátta á öðrum tungumálum er mikill kostur.
Viðkomandi þarf að vera þjónustumiðaður, jákvæður og reiðubúinn til að taka að sér fjölbreytt verkefni á skrifstofu Eflingar.
Sótt er um í gegnum umsjónarkerfi alfreð.
Helstu verkefni og ábyrgð
– Samskipti og þjónusta við félagsfólk
– Móttaka, svörun og úrvinnsla á erindum félagsfólks
– Afgreiðsla umsókna í sjóði
– Svörun algengra fyrirspurna um vinnuréttindi
Menntunar- og hæfniskröfur
– Stúdentspróf eða sambærileg menntun.
– Góð færni í mannlegum samskiptum og menningarlæsi
– Rík þjónustulund og umburðarlyndi
– Góð tök á íslensku og ensku í ræðu og riti, önnur tungumálakunnátta mikill kostur
– Góð tölvukunnátta og reynsla í Office 365

