Staðgengill fyrir undirtitil færslunnar þinnar
Staðgengill fyrir efni færslunnar. Þetta er þar sem innihald bloggfærslunnar þinnar fer. Til að bæta við græjum og sérsníða texta og myndir fyrir einstakar færslur, farðu í Stjórna færslum. Þaðan geturðu breytt núverandi færslu eða bætt við nýrri.
Fjölmennur félags- og trúnaðaráðsfundur Eflingar
Iðnaðarráðherra fjallaði um framkvæmdir á árinu
Iðnaðarráðherra, Össur Skarphéðinsson, fjallaði á fjölmennum félagsfundi Eflingar-stéttarfélags á þriðjudagskvöldið um þær framkvæmdir sem fyrirhugaðar eru á vegum stjórnvalda á þessu ári og næstu misserum. Fram kom í máli hans að Íslendingar standa frammi fyrir miklum möguleikum í ýmiss konar sprotafyrirtækjum, nýjum verksmiðjurekstri ásamt öðrum hefðbundnari atvinnurekstri í álverum og miklum framkvæmdum í vegagerð á árinu. Miklar umræður spunnust á fundinum um atvinnumálin og það atvinnuleysi sem nú dynur á þjóðinni. Össur sagðist sammála þeirri stefnumörkun Eflingar og verkalýðshreyfingarinnar á þessum tíma að leggja aðaláhersluna á atvinnu fólks í yfirstandandi kreppu. Hann var bjartsýnn á að það tækist að vinna þjóðina í gegnum kreppuna og nefndi fjölmarga möguleika í því sambandi m.a.rannsóknarvinnu vegna olíuleitar á Drekasvæðinu norðaustur af landinu.

