Staðgengill fyrir undirtitil færslunnar þinnar
Staðgengill fyrir efni færslunnar. Þetta er þar sem innihald bloggfærslunnar þinnar fer. Til að bæta við græjum og sérsníða texta og myndir fyrir einstakar færslur, farðu í Stjórna færslum. Þaðan geturðu breytt núverandi færslu eða bætt við nýrri.
Félagsmönnum Eflingar
Fækkar lítið í kreppunni
Körlum fækkar á atvinnuleysisskrá en konum fjölgar lítillega
Þegar við skoðum heildarfjölda félagsmanna Eflingar um þessar mundir þá kemur á óvart að þeim hefur fram að þessu fækkað minna en gert hafði verið ráð fyrir eftir bankahrunið í október 2008. Á síðasta ári fór fjöldi byggingafyrirtækja í þrot og fækkaði starfsmönnum mikið í greininni. En þegar félagsmannafjöldi Eflingar er skoðaður aftur í tímann kemur í ljós að hann er ennþá yfir 20 þúsund manns sem er svipað og var fyrir uppsveifluna 2005-2006. Fjölgun starfsmanna í byggingariðnaði og fleiri greinum varð til þess að heildarfélagsmannafjöldi fór á tímabili yfir 24.000 manns. Það kemur því ekki á óvart að mesta fækkunin var í byggingageiranum en hins vegar kemur hröð fækkun í hótel- og veitingageira meira á óvart. Þá hefur stöðug fjölgun í ýmsum þjónustugreinum vegið fækkun í öðrum greinum upp.
Erlent vinnuafl var komið yfir 40% á síðasta ári þegar það fór hæst en með fækkuninni er erlent vinnuafl nú um 36% af félagsmönnum okkar og telja nú um 7.000 manns en voru komnir yfir 10.000 um mitt árið í fyrra.
Félagsmönnum Eflingar sem skráðir eru hjá Vinnumálastofnun þ.e. þeir sem eru skráðir atvinnulausir hefur fækkað nú milli mánaða. Þeir eru nú um 2250 en voru um 2500 manns í apríl og maí.
Körlum á atvinnuleysisskrá í Eflingu hefur fækkað frá apríl til júlí úr 1830 í 1550 manns og eru nú um 70% af hópnum en konum hefur á sama tímabili fjölgað úr 630 í 690 manns.
Þeir sem heyra undir byggingageirann hefur fækkað á atvinnuleysisskrá og eru nú um 500 manns en voru yfir 700 manns í apríl. Þeir komu úr hótel- og veitingageiranum eru um 200 manns og stendur sú tala nokkurn veginn í stað milli mánaða sem þýðir að hlutfallslega hefur þeim fjölgað aðeins sem eru án atvinnu í þeirri grein.
Þá vekur athygli að á atvinnuleysisskrá eru meira en 100 manns úr umönnunarstörfum en voru 174 í apríl.
Af þeim sem eru á atvinnuleysisskrá hjá Eflingu eru um 56% Íslendingar og 26% Pólverjar.

