Staðgengill fyrir undirtitil færslunnar þinnar
Staðgengill fyrir efni færslunnar. Þetta er þar sem innihald bloggfærslunnar þinnar fer. Til að bæta við græjum og sérsníða texta og myndir fyrir einstakar færslur, farðu í Stjórna færslum. Þaðan geturðu breytt núverandi færslu eða bætt við nýrri.
Ferðaþjónustan
Nýtt og spennandi nám í boði
Nýju námi í ferðaþjónustunni hefur verið hleypt af stokkunum. Námið er kærkomið tækifæri fyrir starfsfólk í ferðaþjónustu til að bæta stöðu sína og auka gildi sitt og verðmæti í starfi. Margar áhugaverðar námsgreinar eru á námsskránni og er hægt að fræðast nánar um innihald þess og hvenær það verður í boði hjá Mími símenntun.
Starfsgreinasambandið og Samtök ferðaþjónustunnar hafa haft forgöngu um þróun námsins í samstarfi við Fræðslumiðstöð atvinnulífsins. Efling, Mímir, Starfsafl og fleiri hafa einnig tekið virkan þátt í að móta námið. Nýja námið ber heitið “Kennum ferðaþjónustu“. Það mun hefjast sem tilraunaverkefni á tveimur stöðum í mars ; hjá Mími í Reykjavík og Símey á Akureyri. Endanleg námsskrá frá Fræðslumiðstöðinni verður síðan tilbúin fyrir næsta haust.
Um er að ræða 60 stunda nám sem skipt er upp í 20 kennslustunda lotur. Námið kemur til með að verða einingabært á framhaldsskólastigi sem nemur 5 einingum.

