Staðgengill fyrir undirtitil færslunnar þinnar
Staðgengill fyrir efni færslunnar. Þetta er þar sem innihald bloggfærslunnar þinnar fer. Til að bæta við græjum og sérsníða texta og myndir fyrir einstakar færslur, farðu í Stjórna færslum. Þaðan geturðu breytt núverandi færslu eða bætt við nýrri.
Er ríkisstjórnin að grafa undan samstarfi við launafólk?Samstarf verkalýðshreyfingarinnar og ríkistjórnar úr sögunni? Félagsfundur Eflingar-stéttarfélags mótmælir harðlega þeim áformum í fjárlagafrumvarpinu sem leiða mun til skerðingar á kjörum almennings:Við mótmælum hækkun virðisaukaskatts á matvælum úr 7% upp í 12%.Við mótmælum styttingu á tímabili atvinnuleysisbóta um hálft ár þegar um 1200 félagsmenn Eflingar eru án atvinnu.Við mótmælum harðlega þeim áformum ríkisstjórnarinnar að standa ekki við gefin loforð í tengslum við gerða kjarasamninga með því að fella niður framlag ríkissjóðs til starfsendurhæfingar og skerða þar með getu VIRK starfsendurhæfingarsjóðs til þess að sinna hlutverki sínu í baráttu við örorkuna.Við mótmælum þeirri stefnu ríkisvaldsins að auka enn á kostnað almennings í lyfjakostnaði og komugjöldum á heilsugæslustöðvar.Við hörmum að svíkja eigi margítrekaðar yfirlýsingar ríkisstjórnar um átak í húsnæðismálum þar sem ekki á að leggja neina fjármuni til málaflokksins.Við hörmum að stuðningur í formi vaxtabóta vegna húsnæðiskaupa lækkar að raungildi fimmta árið í röð.Félagsfundur Eflingar-stéttarfélags krefst endurskoðunar á þeim forsendum sem færa byrðar á herðar þeirra sem minna hafa til ráðstöfunar.Það er hlutverk stjórnvalda að stuðla að stöðugleika í efnahagsmálum og leggja grundvöll að auknum jöfnuði í samfélaginu en magna ekki upp ófrið á vinnumarkaði.Fjárlagafrumvarpið sem nú liggur fyrir er uppskrift að ófriði á vinnumarkaði.

