Fjölgun í félaginu

Staðgengill fyrir undirtitil færslunnar þinnar

Staðgengill fyrir efni færslunnar. Þetta er þar sem innihald bloggfærslunnar þinnar fer. Til að bæta við græjum og sérsníða texta og myndir fyrir einstakar færslur, farðu í Stjórna færslum. Þaðan geturðu breytt núverandi færslu eða bætt við nýrri.

Dagsetning

08-05-07

deila

– karlar sækja á……

Félagsmönnum hefur fjölgað jafnt og þétt á undanförnum misserum og einnig eru talsverðar breytingar á samsetningu hópsins.  Mesta fjölgunin hefur átt sér stað í hótel- og veitingageira og eins hefur störfum í byggingariðnaði fjölgað hratt.  Á meðan störfum í vefjar- og fataiðnaði hefur fækkað hafa störf í matvæla- og drykkjaiðnaði svo til staðið í stað.  Þá er nokkuð um að störfum sem áður tilheyrðu ríki eða sveitarfélögum heyra nú undir fyrirtæki í einkaeigu.

Karlar orðnir fleiri en konur

Frá árinu 2002 hefur félagsmönnum sem starfa í byggingariðnaði fjölgað hratt eða úr 1100 manns í 2600 manns.  Fjölgun í þessum störfum hefur jafnframt leitt til þess að kynjahlutföll í félaginu hafa breyst úr því að vera um 45% karlar á móti 55% kvenna árið 2002 í það að vera nú 51% karlar á móti 49% kvenna.  Þá er tæplega helmingur þeirra sem starfa í byggingariðnaði með erlent ríkisfang en sé tekið mið af heildarfjölda félagsmanna þá er hlutfall erlends vinnuafls um 30%.

Unga fólkið fjölmennt í hótel- og veitingageiranum

Vel yfir þrjú þúsund manns starfar nú að jafnaði í hótel- og veitingageira sem er nánast þreföldun á tíu árum.  Unga fólkið er fjölmennast í þessum hópi og jafnframt talsverð hreyfing á þessum hópi en um 7100 félagsmenn komu við sögu í þessari starfsgrein á síðasta ári.  Um 81% félagsmanna í hótel- og veitingageiranum eru undir 30 ára.