Fyrsti aðalfundur faghóps leikskólaliða

Staðgengill fyrir undirtitil færslunnar þinnar

Staðgengill fyrir efni færslunnar. Þetta er þar sem innihald bloggfærslunnar þinnar fer. Til að bæta við græjum og sérsníða texta og myndir fyrir einstakar færslur, farðu í Stjórna færslum. Þaðan geturðu breytt núverandi færslu eða bætt við nýrri.

Dagsetning

29-04-08

deila

Fyrsti aðalfundur Faghóps leikskólaliða

Góður andi og mikil samheldni

– segir Sigurrós Kristinsdóttir


Berglind Agnarsdóttir flytur erindi á fundinum

Það var góð tilfinning að finna þann góða anda og miklu samheldni sem einkenndi fundinn, sagði Sigurrós Kristinsdóttir, varaformaður Eflingar um fyrsta aðalfund Faghóps leikskólaliða sem haldinn var í gærkvöldi. Um 100 leikskólaliðar og nemar fylltu sal Kiwnishússins. Skoðanakönnun um óskir varðandi framhaldsmenntun sem kynnt var á fundinum sýndi að flestir vilja leggja áherslu á sérþarfir barna.

Á fundinum var stjórn faghópsins sjálfkjörin með miklu lófaklappi.

Gestafyrirlesari var Berglind Agnarsdóttir, fyrrverandi leikskólastjóri á Álftaborg sem nú er búsett á Fáskrúðsfirði og starfar sem sagnaþulur. Hún fer um skóla á svæðinu og opnar börnum   töfra sagnaheimanna þar sem þeim eru sagðar góðar sögur. Erindi hennar féll í góðan jarðveg á fundinum enda margar sagnakonur á meðal áheyrenda.