Gleðilega Gleðigöngu – Efling stendur með öllu hinsegin fólki

Staðgengill fyrir undirtitil færslunnar þinnar

Staðgengill fyrir efni færslunnar. Þetta er þar sem innihald bloggfærslunnar þinnar fer. Til að bæta við græjum og sérsníða texta og myndir fyrir einstakar færslur, farðu í Stjórna færslum. Þaðan geturðu breytt núverandi færslu eða bætt við nýrri.

Dagsetning

10-08-24

deila

Efling stéttarfélag óskar félagsfólki sínu og landsmönnum öllum til hamingju með Hinsegin daga sem ná hámarki sínu í dag með Gleðigöngunni. Efling stendur með hinsegin fólki í baráttu þess fyrir mannréttindum og frelsi, baráttu sem gagnast öllu fólki.

Yfirskrift Hinsegin daga í ár er Stolt er styrkur og tekur Efling hjartanlega undir með þeim kjörorðum. Jafnréttisbaráttu stafar sífellt meiri ógn af fordómum og bakslagi, sem hefur því miður orðið vart í auknum mæli hér á landi á síðustu misserum, ekki síst í garð trans fólks. 

Eflingarfólk tilheyrir öllum litum regnbogans og er sannarlega ekki óvant því að berjast gegn fordómum og fyrir réttindum sínum. Við göngum öll öxl í öxl með hinsegin systkinum okkar í þeirra baráttu, hér eftir sem hingað til.