Staðgengill fyrir undirtitil færslunnar þinnar
Staðgengill fyrir efni færslunnar. Þetta er þar sem innihald bloggfærslunnar þinnar fer. Til að bæta við græjum og sérsníða texta og myndir fyrir einstakar færslur, farðu í Stjórna færslum. Þaðan geturðu breytt núverandi færslu eða bætt við nýrri.
Átak á vegum ASÍ, SA og RSK skilar árangri
– segir Tryggvi Marteinsson
Ég tel að þetta starf hafi skilað miklum árangri, segir Tryggvi Marteinsson, starfsmaður Eflingar sem hefur tekið þátt í átaki Ríkisskattstjóra, ASÍ og SA á undanförnum vikum. Nú síðast var farið á veitingastaði í miðbæ Reykjavíkur í eftirlitsferð og það er alveg ljóst að hér er á ferðinni þarft framtak til að hér geti þróast heilbrigðara atvinnulíf. Það sem nú þarf að gerast er að hægt sé að beita viðurlögum strax á vinnustöðum þar sem alvarleg brot eru í gangi svo sem þegar fyrirtæki skila ekki vörslusköttum, segir hann. Ríkisskattstjóri á að geta lokað fyrirtækjum í slíkum tilvikum. Til þess þarf að breyta lögum, segir Tryggvi og Ríkisskattstjóri hefur fullan stuðning okkar megin í verkalýðshreyfingunni fyrir þeirri breytingu.
Ríkisskattstjóri, Alþýðusambandið og Samtök atvinnulífsins manna eftirlitsteymi sem hefur verið starfandi um nokkurra mánaða skeið. Hópurinn fer útá vinnustaðina án þess að gera boð á undan sér.
Í þessum eftirlitsferðum athugar starfsmaður RSK tekjuskráningu dagsins en einnig eru starfsmenn á viðkomandi vinnustað skráðir í gagnagrunn sem RSK og Vinnumálastofnun hafa aðgang að ásamt eftirlitsaðilum.
Ef fyrirtæki er ekki að skila staðgreiðslu af starfsmanni sést það í þessum eftirlitsferðum. Ef starfsmaður er t.d. skráður atvinnulaus en er í vinnu á sama tíma kemur það einnig í ljós.
Tryggvi segir að enginn vafi sé á að starfið hafi þegar skilað miklum árangri og er vonandi að framhald verði á því. Þá segir hann að nauðsynlegt sé að breyta lögum svo RSK geti t.d. lokað fyrirtæki samdægurs þar sem ekki sé verið að skila vörslusköttum, skattsvik eiga sér stað og eru auðsæ. Í slíkum tilvikum eigi ekki að þurfa að bíða eftir því mánuðum saman að kerfið virki. Svipuð úrræði og lögreglan hefur t.d. þegar hún sviptir menn ökuleyfi á staðnum.

