Hátíðin Matur og menning haldin í fjórða sinn

Staðgengill fyrir undirtitil færslunnar þinnar

Staðgengill fyrir efni færslunnar. Þetta er þar sem innihald bloggfærslunnar þinnar fer. Til að bæta við græjum og sérsníða texta og myndir fyrir einstakar færslur, farðu í Stjórna færslum. Þaðan geturðu breytt núverandi færslu eða bætt við nýrri.

Dagsetning

31-08-26

deila

Nú þegar líður að hausti er enn á ný komið að hinni frábæru skemmtun Eflingar stéttarfélags, Mat og menningu. Viðburðurinn verður haldinn í fjórða skipti sunnudaginn 27. september næstkomandi, í Félagsheimili Eflingar, Guðrúnartúni 1.


Á Mat og menningu gefst Eflingarfélögum tækifæri á að bjóða öðrum Eflingarfélögum upp á matarrétti frá sínum upprunalöndum. Efling endurgreiðir efniskostnað og sér um allan borðbúnað, auk drykkjarfanga. Síðustu ár hafa í verið á boðstólum réttir frá á öðrum tug mismunandi landa. Eflingarfélagar koma frá 144 mismunandi löndum og því er sannarlega von á góðu fyrir gesti á komandi hátíð.


Miðasala fyrir gesti hefst á hádegi 14. september og verður auglýst nánar þegar að því kemur. Takmarkað magn miða verður í boði svo það er um að gera að merkja við í dagatalinu til að geta tryggt sér miða.