
Staðgengill fyrir undirtitil færslunnar þinnar
Staðgengill fyrir efni færslunnar. Þetta er þar sem innihald bloggfærslunnar þinnar fer. Til að bæta við græjum og sérsníða texta og myndir fyrir einstakar færslur, farðu í Stjórna færslum. Þaðan geturðu breytt núverandi færslu eða bætt við nýrri.
Verkalýðsfélagið Hlíf segir í yfirlýsingu að barátta Eflingar, Einingar-Iðju og annarra verkalýðshreyfinga gegn gervistéttarfélaginu Virðingu sé barátta verkalýðshreyfingarinnar allrar gegn félagslegum undirboðum og gulum verkalýðsfélögum. Stjórn Hlífar standi heilshugar að baki þeirri baráttu.
Yfirlýsing stjórnar Verkalýðsfélagsins Hlífar
Gerviverkalýðsfélög, svo sem Virðing, eru gagngert stofnuð til þess að grafa undan réttindum og kjörum launafólks. Í krafti yfirburðastöðu sinnar þvinga sumir atvinnurekendur starfsfólk sitt til þess að skrifa undir ráðningarsamninga sem fela í sér skerðingu á þeim kjörum og réttindum sem kveðið er á um í kjarasamningum atvinnurekenda og stéttarfélaga með samningsumboð á viðkomandi sviði.
Stjórn Verkalýðsfélagsins Hlífar hafnar slíkum aðförum og stendur heilshugar á bakvið aðgerðir Eflingar, Einingar-Iðju og annarra þeirra verkalýðsfélaga sem eiga í baráttu við gul stéttarfélag. Þeirra barátta er í raun barátta verkalýðshreyfingarinnar allrar gegn félagslegum undirboðum og svokölluðum gulum verkalýðsfélögum

