Staðgengill fyrir undirtitil færslunnar þinnar
Staðgengill fyrir efni færslunnar. Þetta er þar sem innihald bloggfærslunnar þinnar fer. Til að bæta við græjum og sérsníða texta og myndir fyrir einstakar færslur, farðu í Stjórna færslum. Þaðan geturðu breytt núverandi færslu eða bætt við nýrri.
[et_pb_section fb_built=”1″ admin_label=”section”][et_pb_row admin_label=”row”][et_pb_column type=”4_4″ parallax=”off” parallax_method=”on”][et_pb_text admin_label=”Text”]
Ingvar Vigur Halldórsson hefur gefið kost á sér sem nýr formaður í Eflingu-stéttarfélagi og er hann nú frambjóðandi með einróma stuðning uppstillingarnefndar, stjórnar og trúnaðarráðs félagsins. Ingvar er vel þekktur af störfum sínum innan félagsins þar sem hann hefur setið í stjórn félagsins um árabil og tekið þátt í öllu helsta félagsstarfi á vegum Eflingar. Hann hefur komið að ýmsum félagsmálum frá því hann hóf störf sem verkamaður á Akureyri þegar hann kom fyrst inn á vinnumarkaðinn. Lengst af hefur hann verið trúnaðarmaður á sínum vinnustað bæði á Akureyri og í Reykjavík.
Ingvar Vigur Halldórsson er fæddur á Akureyri 12. janúar 1973 og er því 45 ára á þessu ári.
Ingvar flutti með foreldrum sínum til Færeyja fimm ára að aldri og bjó þar í fimm ár. Þá fluttu þau aftur til Akureyrar.
Eftir skólagöngu hóf Ingvar Vigur störf hjá Akureyrarbæ sem verkamaður og tók þátt í félagsstörfum hjá Einingu frá 16 ára aldri og var trúnaðarmaður þar. Hann flutti síðan til Danmerkur og dvaldi þar í tæp fimm ár og starfaði sem verkamaður.
Þegar hann flutti til Íslands á ný, hóf hann störf hjá Efnamóttökunni hf og starfar hann þar enn þann dag í dag og er jafnframt trúnaðarmaður þar. Ingvar Vigur hefur alla tíð haft áhuga á félagsmálum og verkalýðsmálum sérstaklega og t.d. setið í stjórn Eflingar, trúnaðarráði, sjúkrasjóði og fræðslusjóði félagsins og sótt flest þing Alþýðusambands Íslands og Starfsgreinasambandins undanfarin ár.
Ingvar er giftur Arndísi Einarsdóttur og á hann tvö börn og eina fósturdóttir. Þau eru búsett í Reykjavík.
[/et_pb_text][/et_pb_column][/et_pb_row][/et_pb_section]

