
Staðgengill fyrir undirtitil færslunnar þinnar
Staðgengill fyrir efni færslunnar. Þetta er þar sem innihald bloggfærslunnar þinnar fer. Til að bæta við græjum og sérsníða texta og myndir fyrir einstakar færslur, farðu í Stjórna færslum. Þaðan geturðu breytt núverandi færslu eða bætt við nýrri.
Efling – stéttarfélag hóf í september birtingar á auglýsingum undir yfirskriftinni „Hvernig getum við réttlætt þetta?“ sem sýna sláandi raunveruleika verkafólks á Íslandi.
Tölurnar í auglýsingunum eru úr umfangsmikilli spurningakönnun sem Varða – Rannsóknarstofnun vinnumarkaðarins lagði fyrir félagsfólk ASÍ og BSRB í febrúar fyrr á þessu ári.
Samkvæmt könnuninni er Eflingarfólk í sérstaklega erfiðri stöðu hvað snertir afkomu, húsnæðiskostnað, fjárhagsþrengingar, álag og heilsufar og réttindabrot á vinnumarkaði. Lesa má niðurstöður könnunarinnar um stöðu Eflingarfólks í heild sinni HÉR.
Þau sem skapa verðmætin eiga betra skilið. Berjumst saman fyrir bættum kjörum verkafólks.
Húsnæðisbyrði verkafólks
- Húsnæðiskostnaður Eflingarfólks tekur meira en helming af öllum ráðstöfunartekjum þeirra.
- Sívaxandi hópur Eflingarfólks festist á leigumarkaði.
- Einungis rúmur þriðjungur Eflingarfólks kemst í eigið húsnæði.
- Kreppan á húsnæðismarkaðnum bitnar með mestum þunga á Eflingarfólki.
Heimild: Könnun Vörðu 2023


Fjárhagur og afkoma
- Um 60% Eflingarfólks á erfitt með að ná endum saman.
- Eflingarfólk býr við verstu afkomuna á vinnumarkaðnum.
- Erfiðleikar heimila verkafólks hefur hríðversnað.
Heimild: Könnun Vörðu 2023



Staða Eflingarkvenna
- Um 63% Eflingarkvenna á erfitt með að ná endum saman.
- Meira en helmingur Eflingarkvenna er að sligast undan húsnæðiskostnaði.
- Um 55% Eflingarkvenna getur ekki mætt óvæntum 80.000 kr útgjöldum.
Heimild: Könnun Vörðu 2023




