Kaffiboð eldri félagsmanna Eflingar sunnudaginn 14. maí

Staðgengill fyrir undirtitil færslunnar þinnar

Staðgengill fyrir efni færslunnar. Þetta er þar sem innihald bloggfærslunnar þinnar fer. Til að bæta við græjum og sérsníða texta og myndir fyrir einstakar færslur, farðu í Stjórna færslum. Þaðan geturðu breytt núverandi færslu eða bætt við nýrri.

Dagsetning

27-04-23

deila

Sunnudaginn 14. maí verður kaffiboð fyrir Eflingarfélaga 70 ára og eldri haldið að Gullhömrum í Grafarholti. Efling – stéttarfélag býður gestum upp á kaffi og meðlæti og leikið verður fyrir dansi. Húsið opnar kl. 14:00.

Félagsmönnum er velkomið að bjóða með sér maka eða félaga, þó aðeins einn gest.

Skrá sig þarf fyrirfram. Enga miða þarf heldur verður nafnalisti við innganginn. Hægt er að skrá sig með eftirtöldum hætti til 10. maí:

  • Rafrænt á heimasíðu Eflingar (sjá eyðublað hér að neðan).
  • Með því að hringja á skrifstofuna í síma 510 7500.

Þar sem um takmarkaðan fjölda er að ræða gildir reglan fyrstir koma fyrstir fá.