
Staðgengill fyrir undirtitil færslunnar þinnar
Staðgengill fyrir efni færslunnar. Þetta er þar sem innihald bloggfærslunnar þinnar fer. Til að bæta við græjum og sérsníða texta og myndir fyrir einstakar færslur, farðu í Stjórna færslum. Þaðan geturðu breytt núverandi færslu eða bætt við nýrri.
Efling stéttarfélag kallar eftir tilnefningum þingfulltrúa á 47. þing Alþýðusambands Íslands dagana 14.-16. október næstkomandi. Þingið fer fram á Hilton Reykjavík, Suðurlandsbraut 2, og hefst klukkan 10:00 að morgni miðvikudagsins 14. október.
Efling á rétt á að senda 56 fulltrúa á þingið. Fullgildir félagsmenn í Eflingu geta tilnefnt sjálfa sig og óskar félagið hér með eftir tilnefningum. Þær má senda í gegnum rafrænt eyðublað sem er hér meðfylgjandi og þurfa tilnefningar að hafa borist fyrir klukkan 16:00 mánudaginn 31. ágúst.
Greiddir eru dagpeningar í þrjá daga fyrir setu á þinginu. Upphæðin er 18.100 krónur á dag, sem er í samræmi við ákvörðun Ferðakostnaðarnefndar Fjármála- og efnahagsráðuneytisins. Fulltrúar sem verða fyrir launatapi vegna setu á þinginu fá það endurgreitt frá Eflingu, sendi þeir skrifstofu félagsins gögn til staðfestingar.
Þing Alþýðusambandsins fer með æðsta vald í málefnum sambandsins. Þar fer fram kjör forseta og miðstjórnar auk þess sem lagabreytingar og ályktanir um stefnu sambandsins eru teknar fyrir.Á vef ASÍ má finna allar helstu upplýsingar um þingið, þar á meðal dagskrá, þingskjöl og drög að ályktunum sem fyrir liggja.
