Kjarabreytingar frá 1. janúar 2007
Staðgengill fyrir undirtitil færslunnar þinnar
Staðgengill fyrir efni færslunnar. Þetta er þar sem innihald bloggfærslunnar þinnar fer. Til að bæta við græjum og sérsníða texta og myndir fyrir einstakar færslur, farðu í Stjórna færslum. Þaðan geturðu breytt núverandi færslu eða bætt við nýrri.
Frá 1. janúar 2007 taka í gildi ýmsar breytingar, bæði út frá kjarasamningum og eins vegna samkomulags um endurskoðun þeirra.
Á almennum vinnumarkaði hækka laun um 2,9% í samræmi við endurskoðun kjarasamnings frá nóvember 2005, sjá nánar á síðunni /kjaramal
Hjá ríki/hjúkrunarheimilum og sjálfseignarstofnunum hækka laun einnig um 2,9% frá 1. janúar en hjá Reykjavíkurborg og öðrum sveitarfélögum hækka laun um 3%.
Frá áramótum verða lágmarkstekjur fyrir fullt starf 125.000 kr.
Skatthlutfall staðgreiðslu lækkar í 35,72% og persónuafsláttur hækkar í 32.150 krónur á mánuði.
Þá hækkar framlag atvinnurekanda í lífeyrissjóð úr 7% í 8% á almennum vinnumarkaði og verður þá lágmarksframlag í lífeyrissjóð 12%, þar sem að launamaður greiðir áfram 4%. Um áramótin hækkar einnig framlag atvinnurekanda í starfsmenntasjóð og fer í 0,15%